Maico DZQ Série Instructions De Montage Et Mode D'emploi page 54

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 11
IS
5 Röng notkun
Það má alls ekki nota viftuna í
eftirfarandi aðstæðum. Það getur valdið
lífshættu. Lestu allar öryggisleiðbeiningar.
SPRENGIHÆTTA
EX
Sprengihætta ef kviknar í sprengifimum
!
efnum hjá litlum eða óheimilum
viðnámsleiðaravirknikerfum. Notaðu viftuna
aðeins með aukalegu viðnámsleiðaravirknikerfi
samkvæmt tilskipun 2014/34/ESB ( kafli 6).
Sprengihætta ef margar viftur eru
!
notaðar samhliða með einum einstökum
a.
viðnámsleiðaravirknikerfi
Það er ekki hægt
að tryggja ávallt að það slokkni örugglega á
tækinu ef bilun kemur upp.
Aldrei má nota margar viftur samhliða með einu
viðnámsslökkvikerfi.
Sprengihætta af völdum neistamyndunar ef
!
snúningshjólið snertir umgjörðina ef loftbilið er
of lítið. Tryggðu fullnægjandi loftbil allan hringinn á
milli snúningshjólsins og umgjarðarinnar.
Sprengihætta ef sprengifimu ryki eða ögnum
!
á föstu/fljótandi formi (t.d. málningu) er blásið
í gegnum viftuna þvæ þær geta fests við hana.
Aldrei skal nota viftuna til að blása sprengifimu ryki
eða ögnum á föstu/fljótandi formi.
Sprengihætta við notkun utan við umhver-
!
fis- og notkunarskilyrðin, einkum af völdum
ofhitnunar við notkun sem liggur utan við ley-
filegt notkunarhitastig. Aðeins skal nota viftuna
innan við leyfileg umhverfis- og notkunarskilyrði og
heimilað notkunarhitastig.
Sprengihætta við notkun
!
án
hlífðarbúnaðar ef utanaðkomandi hlutir
detta eða sogast inn í loftrásina  Lífshætta af
völdum neistamyndunar.
Óhindrað loftinntak/úttak skal skilyrðislaust verja
með hlífðarbúnaði samkvæmt EN 60529, t.d með
MAICO-varnargrind SG... (Verndarflokkur IP 20).
Kveðið er á um notkun hlífðargrindar til að koma
í veg fyrir að hendur séu settar inn í viftuna á
báðum hliðum (varnargrind skv. EN 13857),
Sprengihætta ef ekki er hægt að veita
!
sprengifimu andrúmslofti í burtu vegna þess
að aðstreymi lofts er of lítið. Það getur átt sér
stað t.d. í rýmum sem eru of þétt lokuð eða
ef aukalegar rýmissíur eru notaðar. Tryggðu
fullnægjandi aðstreymi lofts. Notaðu viftuna á
svæðum með viðunandi loftmagni.
Sprengihætta við notkun með tíðnibreyti til
!
að stilla snúningshraða. Legustraumar geta
leitt til íkveikju.
Notkun með tíðnibreyti er óheimil.
Sprengihætta vegna óheimilla breytinga á
!
tækinu, rangrar uppsetningar eða af völdum
skemmdra íhluta. Hætta við uppsetningu/
breytingar ef aðrir en fagmenn sjá um þær.
Óheimilt er að nota tækið ef því hefur verið breytt,
það sett upp með röngum hætti eða ef íhlutir þess
eru skemmdir. Óheimilt er að ófaglært starfsfólk
sjái um uppsetningu.
VARÚÐ
!
Slysahætta ef hlífar til að varna því að hendur
séu settar inn í tækið eða það snert (varnarhlífar)
vantar á opin loftinntök/úttök, einkum ef viftan
er á stöðum þar sem einstaklingar hafa aðgang
að henni. Notkun er aðeins heimil með hlífum
til að varna því að hendur séu settar í tækið
á báðum hliðum. Loka skal svæðum, þar sem
aðgangur að hlutum á snúningi er mögulegur
(snúningshjól) með hlífum samkvæmt EN
ISO 13857, t.d. með MAICO-varnarhlífum SG..
(uppfyllir verndarflokk IP 20 samkvæmt EN 60529).
52
6 Nauðsynlegt virknikerfi með
viðnámsleiðara
Heimiluð eru eftirfarandi viðnámsleiðaravirknikerfi,
sem uppfylla eftirfarandi skilyrði, annars fellur
samræmisyfirlýsingin úr gildi:
● Gerðarprófunarvottorð samkvæmt tilskipun RL
2014/34/ESB.
● Auðkenning að minnsta kosti II (2) G samkvæmt
tilskipuninni.
Viðnámsleiðaravirknikerfið verður að passa við
PTC-viðnámsleiðara sem er tengdur við vafninginn
samkvæmt DIN 44082 ( sjá gerðarskilti).
Ádrep á sér stað:
● á uppgefnum tíma á gerðarskiltinu t
● við of hátt hitastig viðnámsleiðara,
þ.e. í sátri tengda mótorsins.
● eftir skammhlaup í viðnámsleiðararásinni.
● ef vír rofnar í viðnámsleiðararásinni.
● eftir rof á veituspennu í öllum þremur ytri
leiðurunum.
Þegar orsakir bilananna eru ekki lengur til staðar
má mótorinn, sem tengdur er, ekki fara sjálfur
aftur í gang. Aðeins handvirk gangsetning má vera
möguleg (gangsetningarlæsing).
Fyrir ákjósanlega vörn mælum við með
viðnámsleiðaravirknikerfinu MAICO MVS 6 með
gerðarprófunarvottun samkvæmt tilskipun RL
2014/34/ESB – fylgið notkunarleiðbeiningum MVS 6.
7 Skyldur uppsetningar- og notkunaraðila
Aðeins má nota viftuna við heimilan umhverfis- og
notkunarhita -20 til +50 °C og aðeins ef hún hefur
verið uppsett í heild.
Rafvirki með sprengihættuþjálfun skal fara reglulega
yfir viftuna og halda henni við  kafli 19.
Það er á ábyrgð rekstraraðila að ákveða þrifa- og
viðhaldstíma samkvæmt EN 60079-17 – tíðni
fer eftir umhverfisaðstæðum og áætluðum
neikvæðum áhrifum. Í ryk- og tærandi umhverfi
skal slytta viðhaldstímann.
Við uppsetningu og notkun skal auk þess fylgja
öryggisreglum, t.d. samkvæmt
● Tilskipun EB 1999/92/EB, ATEX 137: sem hefur
verið innleidd í Þýskalandi með reglugerðinni um
örugga starfrækslu.
● EN 60079-14: Hönnun, val og uppsetning á
rafmagnsbúnaði.
● innlendum reglum um slysavarnir.
8 Öryggisleiðbeiningar fyrir notanda
HÆTTA
!
Sprengihætta vegna neistamyndunar ef
utanaðkomandi hlutum er stungið inn í tækið.
Ekki stinga neinum hlutum inn í tækið.
VARÚÐ
!
Slysahætta vegna snúningshjóls og
sogmyndunar. Hár, klæðnaður, skartgripir
o.s.frv. geta sogast inn í viftuna ef þú ert of
nálægt viftunni. Við notkun skal skilyrðislaust
halda sig í hæfilegri fjarlægð til að slíkt geti ekki átt
sér stað.
VARÚÐ
!
Hætta fyrir einstaklinga (einnig börn) með
skerta líkams-, skyn- eða vitsmunalega getu
eða skort á þekkingu. Óheimilt er að börn eða
einstaklingar með skerta getu sjái um notkun eða
þrif á viftunni.
!
VARÚÐ
Heitt yfirborð mótorsins getur valdið húðbruna
ef það er snert. Ekki snerta heitt yfirborð
mótorsins. Bíddu ávallt þangað til mótorinn hefur
kólnað.
9 Kveikt/slökkt á tækinu
Það er hægt að kveikja eða slökkva á viftunni með
valkvæðum rofa. Til að stilla loftkraftinn er einnig
hægt að stýra tækinu með valkvæðum 5-þrepa
spenni (t.d. MAICO TR..) (fyrir utan DZ. 35/2 B Ex e).
Viftan er gerð fyrir viðvarandi notkun (S1). Ef oft er
kveikt eða slökkt á viftunni getur það valdið óeðlilegri
hitnun og því skal forðast að gera slíkt.
10 Notkun með öfugum blæstri
Staðalgerðir er hægt að stilla fyrir loftun eða
loftræstingu. Við öfugan snúning (öfug flæðisátt)
minnkar magnstraumurinn um u.þ.b. 35 %.
.
A
VARÚÐ
Viftan er varmahönnuð fyrir stöðuga notkun. Við tíð
skipti á snúningsátt eða ef kveikt eða slökkt er oft á
viftunni getur mótorinn hitnað umfram leyfileg mörk.
11 Aðgerðir við bilanir
Aðgættu hvort viðnámsleiðaravirknikerfið hafi
virkjast. Taktu rafmagn af öllum skautum viftunnar
ef bilanir koma upp. Áður en viftan er sett aftur í
gang skal fá fagmenn til að komast að orsökum
bilunarinnar og lagfæra hana. Það á sérstaklega
við ef viðnámsleiðaravirknikerfið hefur virkjast. Ef
bilanir eiga sér endurtekið stað skal senda tækið til
verksmiðjunnar til viðgerðar.
Uppsetning rafvirkja með
sprengivarnarkunnáttu á tækinu
12 Öryggisleiðbeiningar
Notaðu aldrei tækið með „röngum hætti"
 kafli 5.
HÆTTA
!
Hætta af raflosti. Ávallt þegar vinna fer fram
!
á viftunni skal rjúfa straum til hennar og tryggja að
ekki sé hægt að kveikja á henni aftur og ganga
úr skugga um að engin spenna sé á henni. Settu
viðvörunarskilti upp þar sem það sést. Tryggðu að
sprengifimt andrúmsloft sé ekki til staðar.
Sprengihætta. Verndarflokkur er ekki
!
tryggður við ranga tengingu á leiðslum í
tengiboxi.
Tryggðu verndarflokk með réttri tengingu á leiðslum
í tengiboxinu.
Sprengihætta við notkun á tæki sem
!
ekki hefur verið uppsett fullkomlega og ef
loftinntak/-úttak.
Aðeins er heimilt að nota viftuna ef tækið hefur
verið sett upp fullkomlega og með áfestum
öryggisbúnaði (EN 60529) fyrir loftrásina. Tryggðu
að utanaðkomandi hlutir geti ekki sogast inn í
tækið og rörleiðsluna.
Sprengihætta/slysahætta ef viftan er sett
!
upp með röngum hætti eða dettur niður (tækið
er mjög þungt).
Settu aðeins tækið upp á veggi/í loft með
fullnægjandi burðargetu og festingum.
Kaupandi þarf að útvega efni til festingar. Við
uppsetningu skal halda fólki frá svæðinu undir
uppsetningarstaðnum.
Sprengihætta vegna rangrar stillingar.
!
Íhlutar viftunnar sem snúast voru stilltir í
verksmiðjunni. Því má ekki taka tækið í sundur.
Undantekning á þeirri reglu er að fjarlægja má lokið
af tengiboxinu við uppsetningu á tækinu.
er ekki tryggt.

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières