7. Viðhald/Þjónusta: Viðhalds - og þjónustuvinna gerð á tröppunni er ætlað að gæta þess að trappan virki almenni-
lega. Athuga þarf tröppuna reglulega gagnvart skemmdum. Gætið þess að allir hreyfanlegir hlutir tröppunnar virki
almennilega. Hreyfanlega hluti þarf að smyrja reglulega. Allar viðgerðir á tröppunni þurfa að vera framkvæmdar af
fagaðila og í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda. Hreinsið ávallt tröppuna og þá sérstaklega hreyfanlegu hluti
hennar eftir notkun ef óhreinindi komast á hana. Notið hefðbundin vatnsleysanleg hreinsiefni. Notið ekki ágeng efni
eða svarfefni. Ef trappan er notuð af fagaðilum, þarf að grannskoða hana reglulega af viðurkenndum aðila til að gæta
þess að hún sé í góðu ástandi (sjónrænt og með frammistöðuprófi). Ef sú er raunin, er nauðsynlegt að búa til eftir-
litsáætlun sem inniheldur tegund, umfang og millibil þess sem eftirlitið er gert. Bil eftirlits þarf að vera ákveðið í
samræmi við viðeigandi vinnuskilyrði, sérstaklega ef trappan er mikið notuð, hleðslu sem sett er á tröppuna og tíðni
og alvarleiki þeirra galla sem fundist hafa í fyrra eftirliti. Eigandi er einnig ábyrgur gagnvart því að taka gallaðar
tröppur úr notkun á þann hátt að ekki sé hægt að nota þær fyrr en gert hefur verið við þær eða þær fjarlægðar varan-
lega.
Aukahlutir tröppu:
1. Almennir
eftirlitsstaðir
2. Hliðarslá/rimar eða
þrep/öryggisslá
3. Samsetningarhlutir,
festingar
4. Fætur, jafnvægis-
búnaður
5. Stuðningsbúnaður
6. Merki á tröppu/
Notendahandbók
NIÐURSTÖÐUR
8. Geymsla: Festið og bindið niður tröppuna á öruggan hátt þegar þið flytjið hana (t.d. á þakfestingar eða í bílum) til
að forðast skemmdir. Tröppuna á að geyma í þurru umhverfi annaðhvort uppistandandi, flata á jörðinni eða hengda
á vegg með viðeigandi veggfestingum. Hana þarf að geyma á þann hátt svo hún skemmist ekki og alla hluta tröp-
punnar þarf að verja frá veðri. Tröppuna þarf að geyma svo hún sé varin gagnvart börnum og svo að hún valdi ekki
hættu (t.d. fallhættu). Ennfremur þarf að geyma hana á þann hátt að ekki sé hægt að nota hana / fjarlægja við ólög-
mæt athæfi.
9. Umbúðir/förgun: Farga þarf umbúðum í samræmi við viðeigandi reglugerðir og lög. Þegar endingartíma tröp-
punnar er lokið þarf að farga henni í samræmi við viðeigandi reglugerðir og lög. Ál er hágæða málmur og ætti að
endurnýta. Vinsamlegast athugið frekari upplýsingar um endurvinnslu hjá staðbundnum yfirvöldum.
10. Líftími: Þessi trappa er hágæðavara og hönnuð tilo að hún endist lengi ef hún er notuð á viðeigandi hátt og er
haldið vel við.
11. Framleiðandi: KRAUSE-Werk GmbH & Co. KG • Am Kreuzweg 3 • D-36304 Alsfeld
Tel.: +49 (0) 66 31 / 7 95-0 • E-Mail: info@krause-systems.de
www.krause-systems.com • Útgáfudagur: 01/06/2024
Eftirlitsstaðir:
Allar festingar (hnoðnaglar, skrúfur, boltar o.s.frv.) verða að vera á sínum stað. Eru
einhverjar festingar lausar eða tærðar? Eru einhver óhreinindi (t.d. mold, leðja,
málning, olía eða fita) á tröppunni?
Ekki má vanta rimar/tröppur. Eru hliðarslár eða handrið beygð, undin, beygluð,
með sprungum eða tærð? Eru rimarnar eða þrepin slitin, laus, tærð eða skemmd?
Er pallurinn (ef til staðar) eða hlutar hans/festingar skemmd, tærð, eða vantar?
Athugið að stýringar, læsibúnaður og öryggisbúnaður virki rétt, séu þétt og ekki
tærð eða skemmd. Eru stýringar, læsibúnaður og öryggisbúnaður, skemmd, laus
eða tærð, eða ekki til staðar?
Athugið hvort fætur og jafnvægisbúnaður virki rétt, séu þétt og ekki tærð eða
skemmd. Allar fóthettur verða að vera á sínum stað. Eru fætur tröppunnar lausir,
slitnir eða tærðir?
Athugið ástand bindiborða, keðja, samskeyta og styrkinga. Eru allir stuðnings-
staðir í góðu ástandi? Eru einhverjar skemmdir, sprungur eða tæringar?
Eru allar merkingar á tröppu og notendahandbók á sínum stað og læsileg?
Trappan er í góðu ásigkomulagi og hæf til notkunar.
Tröppuna má eingöngu nota eftir viðgerð.
Trappan er ónýt og henni þarf að farga.
Já/nei
31