Télécharger Imprimer la page

3M DBI-SALA Nano-Lok 3101207 Mode D'emploi page 135

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 96
2.0 Notkun kerfis
2.1
FALLVARNAR- OG BJÖRGUNARÁÆTLUN: Vinnuveitandinn verður að búa yfir fallvarnar- og björgunaráætlun. Áætlunin
ætti að veita viðmið og kröfur fyrir fallvarnaráætlun í umsjón vinnuveitanda, þar á meðal reglur, skyldur og þjálfun,
fallvarnarverklag, útilokun og stjórnun á fallhættu, björgunarverklag, rannsókn á atvikum og mat á skilvirkni áætlunar.
2.2
EFTIRLITSTÍÐNI: SRD-búnaður skal skoðaður af viðurkenndum aðila
(sjá töflu 3). Skoðanir skulu að auki fara fram af hæfum aðila
umhverfi, langvarandi notkun, o.s.frv.) geta gert kröfu um tíðari skoðanir hæfs aðila. Hæfi aðilinn skal nota Eftirlitsáætlun
(tafla 2) til að ákvarða hversu oft eftirlit þarf að fara fram. Eftirlitsferli er lýst í „Eftirlits- og viðhaldsskrá" (tafla 3).
Niðurstöður skoðunar hæfs aðila þarf að skrá í „Eftirlits- og viðhaldsskrá" eða í fjarskiptatíðnikerfinu (Radio Frequency
Identification-RFID) (sjá kafla 5).
2.3
VENJULEG NOTKUN BÚNAÐARINS: Venjuleg notkun búnaðarins leyfir líflínunni að strekkjast og dragast saman án hiks
eða slaka eftir því sem starfsmaður vinnur á eðlilegum hraða. Ef fall á sér stað virkjast hraðaskynjandi bremsukerfi, sem
stöðvar fallið og tekur á sig mest af orkunni sem skapast. Forðast skal snöggar og hraðar hreyfingar við venjulega vinnu,
þar sem slíkt getur valdið því að SRD-búnaðurinn læsist. Ef fall á sér stað nálægt enda líflínunnar, grípur innbyggða vara
líflínukerfið eða orkugleypiskerfið inn í til að draga úr afli og stöðva fall.
2.4
LÍKAMSSTUÐNINGUR: Nota skal fullbúið líkamsöryggisbelti með SRD-búnaðinum. Tengipunktur öryggisbeltisins verður
að vera fyrir ofan þyngdarmiðju notandans. Annars konar belti eru ekki samþykkt til notkunar með SRD-búnaðinum. Ef
fall á sér stað við notkun annars konar beltis kann það fyrir slysni að valda losun eða líkamlegu höggi vegna óviðeigandi
líkamsstuðnings.
2.5
SAMHÆFI ÍHLUTA: Ef annað er ekki tekið fram er 3M búnaður hannaður til notkunar með 3M-samþykktum íhlutum og
undirkerfum. Skiptingar eða endurnýjanir sem fara fram með íhlutum eða undirkerfum sem eru ekki samþykkt geta komið
í veg fyrir samhæfi búnaðarins og geta haft áhrif á öryggi og áreiðanleika heildarkerfisins.
2.6
SAMHÆFI TENGJA: Tengi eru talin samhæf við tengihluta þegar þau hafa verið hönnuð til að vinna saman þannig að
stærðir þeirra og lögun valda því ekki að hliðarbúnaður þeirra opnast fyrir slysni, óháð því hvernig þau eru stillt. Hafðu
samband við 3M ef þú ert með einhverjar spurningar um samhæfi. Tengi (krókar, karabínur og D-hringir) verða að geta
stutt að minnsta kosti 22,2 kN (2.500 kg/5.000 pund). Tengi verða að vera samhæf festingunni eða öðrum íhlutum
kerfisins. Ekki nota búnað sem er ekki samhæfur. Tengi sem eru ósamhæf geta losnað fyrir slysni (sjá mynd 5). Tengi
verða að vera samhæf að stærð, lögun og styrkleika. Sjálflæsandi smellukróka og karabína er krafist. Ef tengihluti sem
smellukrókur eða karabína er fest við er of lítill eða er óreglulegur að lögun, gæti ástand komið upp þar sem tengihlutinn
beitir afli á hlið smellukróksins eða karabínunnar (A). Þetta afl getur valdið því að hliðið opnast (B) og að smellukrókurinn
eða karabínan losnar frá tengipunktinum (C).
2.7
TENGING FRAMKVÆMD: Aðeins skal nota sjálflæsandi smellukróka og karabínur með þessum búnaði. Tryggðu
að öll tengi séu samhæf að stærð, lögun og styrkleika. Ekki nota búnað sem er ekki samhæfur. Tryggðu að öll tengi
séu lokuð að fullu og læst. Tengi 3M (smellukrókar og karabínur) eru aðeins ætluð til notkunar eins og tilgreint er í
notkunarleiðbeiningum hverrar vöru. Á mynd 6 má sjá dæmi um ranga tengingu.
Ekki tengja smellukróka og karabínur:
A.
Við D-hring sem annað tengi er fest við.
B.
Á þann hátt sem mundi orsaka álag á hliðið. Stóra smellukróka ætti ekki að tengja við D-hringi af hefðbundinni stærð
eða álíka hluti sem mun orsaka álag á hliðið ef krókurinn eða D-hringurinn snýst, nema smellukrókurinn sé búinn 16
kN (1.633 kg/3.600 punda) hliði.
C.
Við falska tengingu, þegar stærð og lögun pörunartengja eru ekki samhæf, og án sýnilegrar staðfestingar og virðast
vera að fullu fastir við festipunktinn.
D.
Við hvorn annan.
E.
Beint við belti eða dragreipi eða festingu (nema leiðbeiningar framleiðanda fyrir dragreipi og tengi heimili slíka
tengingu).
F.
Við hlut sem er að lögun eða stærð þannig að smellukrókurinn eða karabínan lokast ekki og læsist, eða getur rúllað af.
G.
Á þann hátt sem hindrar það að tengið samstillist rétt undir álagi.
Tegund notkunar
Dæmi um notkun
Sjaldan í ljósi
Björgun og lokuð rými, viðhald í
verksmiðju
Miðlungs eða mikil
Flutningur, byggingar
íbúðahúsnæðis, bjargir, vöruhús
Mjög mikil eða stöðug
Byggingariðnaður, olía og gas,
námavinnsla
1 Viðurkenndur aðili: Aðili sem er skipaður af vinnuveitanda til að fullnægja skyldum á vinnustað þar sem aðili getur verið í fallhættu.
2 Björgunaraðili: Aðili eða aðilar aðrir en sá sem skal bjarga, sem starfa við að framkvæma björgun með notkun björgunarkerfa.
3 Hæfur aðili: Einstaklingur tilgreindur af vinnuveitanda til að vera ábyrgur fyrir umsjón, innleiðingu og eftirlit með fallvarnarkerfi í umsjón vinnuveitanda sem er fær um
að auðkenna, meta og leysa úr núverandi og hugsanlegri fallhættu með þjálfun og þekkingu, og sem hefur heimild vinnuveitanda til að grípa til aðgerða til úrbóta
varðandi slíka hættu.
3
Tafla 2 - Eftirlits- og viðhaldsáætlun
Aðstæður við notkun
Góðar geymsluaðstæður, notkun innandyra eða
utandyra, við stofuhita, hreinlegt umhverfi
Góðar geymsluaðstæður, notkun innan og utandyra,
allskyns hitastig, hreint eða rykugt umhverfi
Erfiðar geymsluaðstæður, löng eða stöðug notkun
utandyra, allskyns hitastig, óhreint umhverfi
135
eða björgunarsveitarmanni
1
öðrum en notandanum. Erfiðar vinnuaðstæður (óblítt
fyrir sérhverja notkun
2
Eftirlitstíðni
Hæfur aðili
Árlega
Á hálfs árs fresti
eða árlega
Ársfjórðungslega eða
á hálfs árs fresti

Publicité

loading