Samsetning PSU
Sjá mynd D.
1. Settu millistykkið sem passar þínu svæði inn í PSU.
2. Til að fjarlægja millistykkið úr PSU, ýttu á hnappinn undir örinni og renndu því út.
VARÚÐ
• Skiljið ekki millistykkið eftir eitt og sér í rafmagnsúttaki.
• Stingið ekki PSU á hvolf í rafmagnsinnstungu. Gangið úr skugga um að rafmagnssnúran liggi
niður á við.
Uppsetning
Sjá mynd E.
RCM er aðeins hægt að tengja við eina öndunarvél í einu.
1. Tengdu RCM við rafmagnið með PSU. Gakktu úr skugga um að Aflvísirinn lýsi.
2. Staðsettu RCM þar sem merkjavísirinn sýnir að þú sért með nettengingu, og gakktu úr skugga
um að RCM sé:
• í meira en 2 sm fjarlægð frá líkamanum á meðan á notkun stendur.
• á svæði sem ekki verður fyrir áhrifum af raka.
• best í 1 m fjarlægð frá öndunarvél eða öðrum rafbúnaði og 30 sm fjarlægð frá
farsímasamskiptatækjum.
3. Gakktu úr skugga um að RCM sé fest með standinum eða veggfestingunni. Sjá kaflann Notkun
standsins/veggfestingar.
4. Tengdu annan endann á USB-snúrunni við micro-USB-tengi RCM, og hinn endann við Mini USB-tengi
aftan á rafknúnu öndunarvélinni (sjá mynd). Tryggið að inntak öndunarv. vísirinn lýsi.
5. Til að tryggja að réttir tímar séu sýndir í AirView, gangið úr skugga um að klukkan á öndunarvélinni
sé rétt (breytið ef við á).
Ath.:
•
Hafðu samband við heilsugæsluna eða fulltrúa ResMed til að fá frekari aðstoð.
•
Til að stöðva RCM skaltu taka rafmagnssnúruna úr sambandi við rafmagnsinnstunguna.
Notkun standsins/veggfestingar
Standur
Sjá mynd F.
1. Komið tækinu fyrir á stöðugu, sléttu undirlagi.
2. Settu lengri brún standsins inn í RCM og tryggðu að hann smelli á sinn stað.
3. Til að fjarlægja standinn skal losa klemmuna á standinum.
Veggfesting
Sjá mynd G.
Notaðu viðeigandi festingar til að festa veggfestinguna. Til dæmis, notaðu kringlóttu götin eða
rifurnar á veggfestingunni fyrir skrúfur eða kapalbönd (fylgja ekki með).
RCM er aðeins hentugur til að setja upp í hæð ≤ 2 m.
Íslenska
3