1
Almennt
Tilgangur skjalsins
1.1
Þessar notkunar- og uppsetningarleiðbeiningar eru hluti
af vörunni og hafa að geyma upplýsingar fyrir notendur
um örugga notkun sem og upplýsingar fyrir rafvirkja um
örugga uppsetningu Webasto Pure-hleðslustöðvarinnar.
1.2
Notkun þessa skjals
Lesið notkunar- og uppsetningarleiðbeiningarnar áður
u
en Webasto Pure-hleðslustöðin er sett upp og tekin í
notkun.
Geymið þessar leiðbeiningar þar sem ávallt er hægt að
u
nálgast þær.
Afhenda skal síðari eigendum eða notendum
u
hleðslustöðvarinnar þessar leiðbeiningar.
ÁBENDING
Við vekjum athygli á því að til þess að uppsetning teljist
hafa farið rétt fram þarf uppsetningaraðilinn að ganga frá
uppsetningarskýrslu. Vinsamlegast fyllið einnig út Gátlisti
fyrir uppsetningu Webasto-hleðslustöðvar.
IS
ÁBENDING
Litblindir þurfa aðstoð við að greina á milli villuboða.
Fyrirhuguð notkun
1.3
Webasto Pure-hleðslustöðin er ætluð til að hlaða raf- og
tvinnbíla samkvæmt IEC 61851-1, hleðsluaðferð 3. Með
þessari hleðsluaðferð tryggir hleðslustöðin eftirfarandi:
– Spennu er ekki hleypt á fyrr en bíllinn hefur verið
tengdur rétt við hleðslustöðina.
– Hámarksstraumstyrkur hefur verið borinn saman.
1.4
Notkun tákna og áherslumerkinga
HÆTTA
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með háu
áhættustigi sem leiðir til banaslysa eða alvarlegra meiðsla
ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
182
VIÐVÖRUN
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með áhættustigi í
meðallagi sem getur leitt til minniháttar eða óverulegra
meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
ÁBENDING
Viðvörunarorðið vekur athygli á tæknilegum eiginleika eða
(ef ekki er brugðist rétt við) hættu á því að varan verði fyrir
skemmdum.
ü Skilyrði fyrir eftirfarandi leiðbeiningar
Leiðbeiningar
u
VARÚÐ
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með lágu
áhættustigi sem getur leitt til minniháttar eða óverulegra
meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
1.5
Ábyrgð vegna galla og skaðsemisábyrgð
Webasto undanskilur sig allri ábyrgð vegna ágalla og
skemmda sem rekja má til þess að ekki var farið eftir
notkunar- og uppsetningarleiðbeiningum. Þessi útilokun
ábyrgðar gildir einkum um eftirfarandi:
– Röng notkun.
– Rafvirki sem er ekki á vegum Webasto annast viðgerðir
– Ekki voru notaðir upprunalegir varahlutir frá
framleiðanda.
– Gerðar voru breytingar á tækinu án samþykkis
Webasto
– Ófaglærður aðili (ekki rafvirki) sá um að setja búnaðinn
upp og taka hann í notkun.
– Tækinu var ekki fargað með réttum hætti eftir að það
var tekið úr notkun
2
Öryggi
2.1
Almennt
Þróun, framleiðsla, prófanir og gögn hleðslustöðvarinnar
samræmast viðeigandi reglum um öryggi og
umhverfisvernd. Aðeins má nota tækið þegar það er í
fullkomnu lagi.
Ef bilanir koma upp sem stefna öryggi fólks og tækisins í
hættu skal tafarlaust láta rafvirkja gera við þær
samkvæmt gildandi reglum í hverju landi.
ÁBENDING
Merkjagjöfin í bílnum kann að vera frábrugðin því sem
fram kemur í þessari lýsingu. Lesið ávallt og farið eftir því
sem fram kemur í notendahandbók framleiðanda bílsins.
2.2
Almennar öryggisupplýsingar
– Hættulega há spenna í innanverðum búnaðinum.
– Ekki er rofbúnaður í sjálfri hleðslustöðinni.
Öryggisbúnaðurinn í rafmagnstöflunni er einnig
notaður til að rjúfa strauminn til
hleðslustöðvarinnar.
– Athugið hvort sýnilegar skemmdir eru á
hleðslustöðinni áður en hún er notuð. Ekki má
nota hleðslustöðina ef um skemmdir er að ræða.
– Rafvirki verður að sjá um að setja hleðslustöðina
upp, tengja hana við rafmagn og taka hana í
notkun.
– Ekki má taka hlífina yfir uppsetningarsvæðinu af
meðan á notkun stendur.
– Ekki má fjarlægja merkingar, viðvörunartákn eða
upplýsingaplötu af hleðslustöðinni.
– Rafvirki verður að sjá um að skipta um
hleðslusnúruna samkvæmt leiðbeiningum.
– Það er með öllu óheimilt að tengja önnur tæki við
hleðslustöðina.
– Þegar hleðslusnúran er ekki í notkun skal geyma
hana í þar til ætlaðri festingu og festa hleðsluklóna
í hleðslustöðinni. Vefjið hleðslusnúrunni lauslega
utan um hleðslustöðina þannig að hún snerti ekki
gólfið.
– Gætið þess að ekki sé hætta á að ekið sé yfir
hleðslusnúruna og hleðsluklóna, þær klemmist eða
verði fyrir öðru hnjaski.
– Ef hleðslustöðin, hleðslusnúran eða hleðsluklóin
verða fyrir skemmdum skal tafarlaust gera
þjónustuaðila viðvart. Ekki má halda notkun
hleðslustöðvarinnar áfram.
– Verjið hleðslusnúruna og -klóna fyrir ytri
hitagjöfum, vatni, óhreinindum og efnum.
OI II Webasto Pure