Télécharger Imprimer la page

Etac R82 x:panda Serie Manuel D'utilisation page 157

Masquer les pouces Voir aussi pour R82 x:panda Serie:

Publicité

Almennt
Þú hefur valið tæki frá R82 – alþjóðlegum söluaðila hjálpartækja og búnaðar fyrir börn og unglinga með
sérþarfir. Til að nýta sem best þá valkosti sem þetta tæki hefur upp á að bjóða skaltu lesa notendahand-
bókina fyrir notkun og geyma hana til síðari nota.
Tilgangur
Tækið er sætiseiningakerfi ætlað börnum og
fullorðnum með fötlun.
Ábendingar
Börn og fullorðnir sem geta ekki setið án
stuðnings geta notað tækið. Markhópur
tækisins byggist á hreyfigetu en ekki sérstöku
heilbrigðisástandi eða aldri.
Notandinn er sá sem situr í tækinu.
Umönnunaraðilinn er sá sem stýrir tækinu.
Notandinn má aldrei vera eftirlitslaus í tækinu.
Tryggja skal að umönnunaraðili sinni stöðugu
eftirliti.
Þegar notandinn liggur, stendur eða situr í öðru
hjálpartæki eða hefðbundnu tæki er þetta tæki
ekki í notkun á meðan.
Frábendingar
Engar frábendingar eru þekktar.
Varúðarreglur
Sérstaklega skal gæta að eftirfarandi atriðum við
uppsetningu tækisins og notkun aukahluta þegar
um er að ræða notendur með takmarkanir á:
• skynjunaraðgerðir og sársaukaskynjun.
Fylgjast skal sérstaklega með þrýstingi sem
notandi verður fyrir af völdum tækisins og
aukahluta þess.
• hreyfigetu (t.d. einstaklingar með ósjálfráðar
hreyfingar). Íhuga skal að nota tæki með
stillanlegri bakstoð.
• getu til að halda sitjandi stöðu. Íhuga skal
að nota vöruna með aukahlutum (t.d.
hliðarstuðningi, öryggisvesti, öryggisbelti,
stuðningi fyrir handleggi, borði).
• getu til að halda höfði. Íhuga skal að nota
aukahluti sem veita sérstakan stuðning við
höfuð.
Notkunarsvið
Nota má tækið bæði innan og utan dyra.
Verkfæri sem fylgja með:
• 5 mm sexkantlykill
Samræmisyfirlýsing
Þetta tæki samræmist kröfum tilskipunar um
lækningatæki (2017/745). Auk þess samræmist
tækið kröfum eftirfarandi staðla:
• EN 12182
• EN 12183
Fjarlægja verður CE-merkinguna ef:
• tækið er sett saman aftur eftir að hafa verið
tekið í sundur
• tækið er ekki notað í samræmi
etac.com
ÍSLENSKA
EN
við fyrirhugaðan tilgang þess og
samræmisyfirlýsingu
• notaðir eru varahlutir eða útbúnaður sem ekki
er frá R82.
Þegar tækið er notað samhliða öðrum tækjum
má slík samsetning ekki vera í því skyni að breyta
fyrirhuguðum tilgangi viðkomandi tækja og ekki
má breyta tækjunum á þann veg að það geti
haft áhrif á samræmi við gildandi kröfur. Aðilinn/
fyrirtækið sem ber ábyrgð á samhliða notkun
tækjanna skal tryggja að gildandi kröfur séu
uppfylltar.
Dæmi um gildandi kröfur:
• Öryggi efna (lífsamrýmanleiki, eldfimi), vélrænt
öryggi (stöðugleiki, hætta á að kremjast,
samtengingar), rafmagnsöryggi.
Förgun
Þegar endingartími tækisins er liðinn skal það
tekið í sundur eftir efnistegundum svo hægt sé
að endurvinna eða farga hlutum þess á réttan
hátt. Ef þörf krefur skal hafa samband við næsta
söluaðila til að fá nákvæma lýsingu á hverju
efni. Hafið samband við staðaryfirvöld til að fá
upplýsingar um hvaða valkostir eru í boði fyrir
umhverfisvæna endurvinnslu.
Aukahlutir og varahlutir
Tæki frá R82 má fá með ýmsum aukahlutum í
samræmi við þarfir hvers notanda. Hægt er að
panta varahluti. Aukahluti má finna á vefsvæði
okkar en einnig má fá nánari upplýsingar hjá
næsta söluaðila.
Ábyrgð R82
www.etac.com/support
Upplýsingar og leiðbeiningar fyrir
kaup
Upplýsingar og leiðbeiningar varðandi kaup má
finna á www.etac.com, undir viðkomandi tæki, í
hlutanum „documents" (skjöl).
157

Publicité

loading