Télécharger Imprimer la page

Webasto Next Notice De Montage page 168

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 116
2
Almennt
Nýjustu útgáfu þessa skjals er að finna á: https://
charging.webasto.com/int/products/documentation
2.1
Tilgangur skjalsins
Þessi stutti leiðarvísir fylgir með vörunni Webasto Next og
hefur að geyma helstu upplýsingar um notkun, öryggi og
uppsetningu hennar. Nýjustu útgáfu leiðarvísisins er að
finna á slóðinni:
https://charging.webasto.com/int/products/
documentation
Til að tryggja öryggi við uppsetningu og notkun Webasto
Next verður að fylgja ítarlegu notkunar- og
uppsetningarleiðbeiningunum.
Fylgja verður notkunar- og uppsetningarleiðbeiningunum
við notkun:
– vefviðmótsins
– dýnamísku álagsstjórnunarinnar (DLM)
– orkustjórnunarkerfisins fyrir heimili (HEMS)
IS
Nálgast má notkunar- og uppsetningarleiðbeiningarnar á
vefsíðu Webasto á slóðinni:
https://charging.webasto.com/int/products/
documentation
Notkun þessa skjals
2.2
u
Lesa skal þennan stutta leiðarvísi áður en Webasto
Next-hleðslustöðin er sett upp og tekin í notkun.
u
Geymið skjalið þar sem auðvelt er að nálgast það.
u
Afhenda skal skjalið síðari eigendum eða notendum
hleðslustöðvarinnar.
ÁBENDING
Við vekjum athygli á því að til þess að uppsetning
teljist hafa farið rétt fram þarf uppsetningaraðilinn að
ganga frá uppsetningarskýrslu. Vinsamlegast fyllið
einnig út gátlistann okkar, sjá Kafli 9, "Gátlisti fyrir
uppsetningu Webasto-hleðslustöðvar" á bls. 176.
ÁBENDING
Litblindir þurfa aðstoð við að greina á milli villuboða.
168
Fyrirhuguð notkun
2.3
Webasto Next-hleðslustöðin er ætluð til að hlaða raf- og
tvinnbíla samkvæmt IEC 61851-1, með hleðsluaðferð 3.
2.4
Notkun tákna og áherslumerkinga
HÆTTA
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með háu
áhættustigi sem leiðir til banaslysa eða alvarlegra
meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
VIÐVÖRUN
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með
áhættustigi í meðallagi sem getur leitt til minniháttar
eða óverulegra meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi
ráðstafanir.
VARÚÐ
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með lágu
áhættustigi sem getur leitt til minniháttar eða
óverulegra meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi
ráðstafanir.
ÁBENDING
Viðvörunarorðið vekur athygli á tæknilegum eiginleika
eða (ef ekki er brugðist rétt við) hættu á því að varan
verði fyrir skemmdum.
Vísar í önnur skjöl sem fylgja ýmist með eða eru
fáanleg hjá Webasto.
2.5
Ábyrgð vegna galla og skaðsemisábyrgð
Ef um kvartanir, ágalla eða hvers kyns skemmdir er að
ræða skal snúa sér beint til viðkomandi samningsaðila,
uppsetningaraðila eða söluaðila.
Webasto undanskilur sig allri ábyrgð vegna ágalla og
skemmda sem rekja má til þess að ekki var farið eftir
notkunar- og uppsetningarleiðbeiningum. Þessi útilokun
ábyrgðar gildir einkum um eftirfarandi:
– Ranga notkun.
– Viðgerðir sem framkvæmdar eru af rafvirkja sem er
ekki á vegum Webasto.
– Ekki voru notaðir upprunalegir varahlutir frá
framleiðanda.
– Gerðar voru óleyfilegar breytingar á tækinu án
samþykkis Webasto.
– Ef búnaðurinn er settur upp og tekinn í notkun af aðila
sem uppfyllir ekki hæfniskröfur (er ekki faglærður
rafvirki).
– Ef ekki er staðið rétt að förgun þegar búnaðurinn er
tekinn úr notkun.
VIÐVÖRUN
Faglærður rafvirki verður að sjá um að setja
hleðslustöðina upp og tengja hana við rafmagn.
Táknið með yfirstrikuðu ruslatunnunni segir til um
að fylgja skuli leiðbeiningunum í kaflanum
„Kafli 7, "Förgun" á bls. 175".
2.6
Hugbúnaðarleyfi
Þessi vara inniheldur opinn hugbúnað (Open Source
Software). Frekari upplýsingar um þetta atriði (fyrirvara,
skrifleg tilboð, leyfisupplýsingar) er hægt að sækja af
vefþjóni. Hægt er að tengjast vefþjóninum í gegnum
þráðlausa aðgangsstaðinn (https://172.0.2.1/
licensing.html).
Öryggi
3
3.1
Almennt
Aðeins má nota tækið þegar það er í fullkomnu lagi.
Ef bilanir koma upp sem stefna öryggi fólks og tækisins í
hættu skal tafarlaust láta rafvirkja gera við þær
samkvæmt gildandi reglum í hverju landi.
Almennar öryggisupplýsingar
3.2
– Hættulega há spenna í innanverðum búnaðinum.
– Ekki er rofbúnaður í sjálfri hleðslustöðinni.
Öryggisbúnaðurinn í rafmagnstöflunni er einnig
notaður til að rjúfa strauminn til
hleðslustöðvarinnar.
– Athugið hvort sýnilegar skemmdir eru á
hleðslustöðinni áður en hún er notuð. Ekki má
nota hleðslustöðina ef um skemmdir er að ræða.
– Rafvirki verður að sjá um að setja hleðslustöðina
upp, tengja hana við rafmagn og taka hana í
notkun.
– Ekki má taka hlífina yfir uppsetningarsvæðinu af
meðan á notkun stendur.
5111233C_ISI_Next

Publicité

loading