Outdoorchef DUALCHEF 325 G Mode D'emploi page 47

Masquer les pouces Voir aussi pour DUALCHEF 325 G:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 12
BILANIR LAGFÆRÐAR
Það kviknar ekki á brennaranum:
Athugið hvort skrúfað hefur verið frá gasinu á kútnum.
Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.
VARÚÐ: Þegar þetta er athugað verður að vera skrúfað fyrir gasið á kútnum!
Enginn neisti:
Gangið úr skugga um að rafhlöðurnar hafi verið settar rétt í og séu hlaðnar.
Bilið milli brennara og rafskauts má ekki vera meira en 4–6 mm.
Athugið hvort snúrur í rafkveikju og rafskauti eru vel festar.
Setjið tvær nýjar rafhlöður (af gerðinni AAA, 1,5 V) í rafkveikjuna.
Ef ekki tekst að koma grillinu í gang með þessum úrræðum skal hafa samband við sölustað.
NOTENDAÁBYRGÐ
1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda
Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF-vöru hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð
framleiðandans OUTDOORCHEF AG („OUTDOORCHEF").
Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur
gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur
þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til
dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.
Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þannig er til dæmis
hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart OUTDOORCHEF innan ramma þessarar ábyrgðar.
2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðarveitandi er OUTDOORCHEF. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal
fram sölukvittun til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að
það sé í atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.
Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því ágalli kemur í ljós. Að öðrum kosti
er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. OUTDOORCHEF mælir af
þessum sökum með því að skoða vöruna með tilliti til ágalla strax við móttöku.
3. Gildissvið
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt í eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:
INNRAUÐUR KERAMIKBRENNARI
GRIND ÚR RYÐFRÍU STÁLI
AÐRIR HLUTAR
Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamismunur eða minniháttar útlitsgallar, til dæmis á stöðum sem varan hvílir á við framleiðslu,
sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun OUTDOORCHEF annaðhvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni,
að eigin vali. Að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru
af nýrri gerð, t.d. fyrir aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir
þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fébætur í stað viðgerðar.
OUTDOORCHEF.COM
5 ár
Framleiðslugallar eða gegnumbruni.
5 ár
Gegnumryð eða -bruni
2 ár
Fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla
92
Á meðan unnið er úr ábyrgðarkröfu (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn OUTDOORCHEF um nýja
vöru eða frekari bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign
OUTDOORCHEF. Aðeins þegar skipt hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.
Allar frekari kröfur á hendur ábyrgðarveitanda falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða
takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).
4. Undanskilið ábyrgð
Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:
Eðlilegt slit við fyrirhugaða notkun, einkum á almennum slithlutum eins og kveikju og rafhlöðu, rafskauti, kveikitaug, gasslöngu,
gasþrýstijafnara, fituplötu og fitubakka.
Bilun og/eða skemmdir vegna óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum
eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábrenndum
yfirborðsfleti trektarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum,
vegna notkunar á skaðlegum íðefnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.).
Bilanir og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem OUTDOORCHEF hefur ekki
viðurkennt.
Bilanir og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. hagléls eða eldinga).
Bilanir og/eða skemmdir sem valdið er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem OUTDOORCHEF ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilanir og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilanir og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka.
Bilanir og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. í hótel- eða veitingarekstri).
5. Úrvinnsla ábyrgðar
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða skaltu hafa samband við okkur eða viðurkenndan söluaðila eins fljótt og auðið er (lista yfir söluaðila er að
finna á www.outdoorchef.com) og tilgreina eftir því sem hægt er vöruna / hluta vörunnar, sölukvittun, raðnúmer og vörunúmer (koma bæði
fram á upplýsingalímmiða á grillinu; sjá fyrsta kaflann í notkunarleiðbeiningunum), ásamt heimilisfangi þínu. Þú mátt gjarnan láta mynd fylgja
með lýsingunni á gallanum. Skilaðu vörunni til söluaðilans eða okkar svo við getum prófað vöruna og kannað hvort ábyrgðin gildi. Í réttmætum
ábyrgðartilvikum munum við endurgreiða nauðsynlegan flutnings- og sendingarkostnað, annars munum við senda vöruna til baka á þinn kostnað.
Eftirfarandi fyrirtæki er fulltrúi fyrir skráða vörumerkið OUTDOORCHEF
Outdoorchef AG | Eggbühlstrasse 28 | Postfach | 8050 Zürich, Sviss | www.outdoorchef.com
*
Listi yfir söluaðila er á vefsíðunni okkar á OUTDOORCHEF.COM
**
Raðnúmer og vörunúmer eru á upplýsingalímmiðanum á grillinu (sjá fyrsta kafla í þessum NOTKUNARLEIÐBEININGUM).
OUTDOORCHEF.COM
93

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Dualchef s 325 gDualchef 425 gDualchef s 425 g

Table des Matières