ÍSLENSKT
Rafmagnssnúran má aldrei snerta oddhvassa hluti eða hvassar brúnir.
●
Aldrei má brjóta upp á rafmagnssnúruna, kremja hana eða breyta henni á neinn hátt.
●
VIÐVÖRUN ‒ Hætta á brunasárum!
Útblásturopið verður heitt og getur valdið bruna.
●
Snertið aldrei útblásturopið.
●
Skemmd tæki
VIÐVÖRUN ‒ Hætta á raflosti!
Skemmt tæki eða rafmagnssnúra er hættulegt.
●
Notið aldrei skemmt tæki.
●
Notið aldrei tæki með sprungið eða brotið yfirborð.
●
Ekki toga í rafmagnssnúruna til að aftengja tækið rafmagni. Takið alltaf í rafmagns-
●
klónna.
Ef tækið eða rafmagnssnúra er skemmd skaltu taka strax úr sambandi eða slá út öryggi
●
og skrúfa fyrir vatnskrana.
Hafið samband við notendaþjónustu.
●
Ófullnægjandi viðgerðir eru hættulegar.
●
Aðeins hæft starfsfólk má gera við tækið.
●
Einungis má nota upprunalega varahluti til að gera við tækið.
●
Ef rafmagnstengisnúra eða tengisnúra þessa tækis er skemmd, verður að skipta henni
●
út fyrir sérstaka nettengisnúru eða sérstaka tækjatengisnúru sem fæst hjá framleið-
anda eða þjónustuveri hans.
Hættur fyrir börn
VIÐVÖRUN ‒ Hætta á köfnun!
Börn geta kafnað ef þau setja umbúðir yfir höfuð sér eða upp í sig.
●
Geymið umbúðir þar sem börn ná ekki til.
●
Börn mega ekki leika sér að umbúðunum.
●
Börn geta kafnað ef þau anda að sér eða neyta smáhluta.
●
Geymið smáhluti þar sem börn ná ekki til.
●
Börn mega ekki leika sér að smáhlutunum.
●
Börn geta lokast í tækinu og kafnað.
●
Notaðu barnalæsingu ef slíkt er til staðar.
●
Börn mega ekki nota tækið eða leika sér að því.
●
VIÐVÖRUN ‒ Hætta á heilsuskaða!
Börn geta lokast inni í tækinu og lent í lífshættu.
●
Ef um ræðir tæki sem ekki lengur í notkun skal aftengja rafmagnstengið á snúrunni,
●
klippa síðan rafmagnssnúruna og eyðileggja læsingu hurðar tækis svo hún lokist ekki
lengur.
VIÐVÖRUN ‒ Hætta á að kremjast!
Börn geta festst milli hurðar og innréttingar þegar tæki eru staðsett ofan á innréttingu.
●
Hafið aðgát ef hurð tækis er opnuð og lokuð í návist barna.
●
VIÐVÖRUN ‒ Hætta á efnabruna!
Skolunar- og hreinsiefni geta valdið bruna í munni, hálsi og augum.
●
Geymið hreinsi- og þvottaefni þar sem börn ná ekki til.
●
Haldið börnum frá opnu tæki. Vatnið í þvottahólfinu er ekki drykkjarhæft. Þar geta
●
leynst leifar af hreinsi- og þvottaefni.
996