Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi við tæki í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð
tækisins að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notenda
og/eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki sinna þjónustu og viðhaldi
á meðan varan er í notkun. Ef þörf krefum skal hafa samband við söluaðila á staðnum til að fá
aðstoð við uppsetningu, notkun eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi við tækið.
Endingartími
Endingartími vörunnar við venjulega notkun
er 8 ár ef öllu viðhaldi og þjónustu er sinnt
samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og
skráð svo hægt sé að sýna fram á það.
Endurnotkun
Þessi vara og aukahlutir/íhlutir hennar henta
til endurnotkunar.
Endurbætur fyrir endurnotkun
Áður en varan er notuð aftur eða skipt um
notanda skal fylgja viðhaldsgátlistanum og
hreinsunarleiðbeiningum, ásamt því að skoða
hana reglulega.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana getur breyst eftir notkun og sliti.
Mælt er með því að varan sé skoðuð árlega,
í hvert sinn sem varan er endurútgefin
til notkunar og eftir langtímageymslu
(meira en 4 mánuði). Aðili sem hefur skilning
á notkun vörunnar skal sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Yfirfarið og stillið eftirfarandi í samræmi
við fyrirhugaða notkun:
• Stillingarmöguleikar fyrir bak, mjaðmir
og fætur.
• Pumpa fyrir bakhalla og öryggislás.
• Hægt er að stilla sætisbakið og læsa
því í ákveðinni stöðu.
• Herðið rær og bolta á vörunni.
• Athugaðu allar festingar og sylgjur
fyrir merki um slitna hluta.
• Leitið eftir merkjum um sprungur
eða slitna íhluti.
• Allar merkingar á vörunni eru heilar.
Gerið við eða skiptið um skemmda eða
slitna hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
Þurrka leifar og óhreinindi af vörunni með klút
með volgu vatni og mildu hreinsiefni/sápu án
klórs og láta stólinn síðan þorna fyrir notkun.
Gerið sjónræna skoðun á því hvort einhverjir
hlutir séu skemmdir eða slitnir.
Þvottur
Aðalvara
Vöruna má þvo á 60° hita með mildu
þvottaefni í 10 mínútur í þvottavél sem
er hönnuð fyrir lækningatæki. Notið
þurrkunaraðgerð vélarinnar til að þurrka
XX IS
vöruna. Fjarlægið allan aukabúnað
og þvoið hann sérstaklega.
Efni og áklæði
Áklæðið má þvo við hámark 60°
hita með mildu þvottaefni í þvottavél.
Takið áklæðið af svampinum fyrir þvott.
Svampur
Svampinn má aðeins þvo í höndunum. Notið
volgt vatn og milt hreinsiefni/sápu án klórs
og leyfið öllum hlutum að þorna fyrir notkun.
Á meðan og eftir að svampur er þveginn skal
ekki beygla, kreista eða snúa upp á hann þar
sem það getur haft neikvæð áhrif á formið.
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo þessa vöru og fylgihluti
hennar í höndunum. Notið volgt vatn og milt
hreinsiefni/ sápu án klórs og leyfið öllum
hlutum að þorna fyrir notkun.
Sótthreinsun
Vöruna má sótthreinsa með 70% sótthreinsi-
spritti. Mælt er með því að nota klút með volgu
vatni og mildu hreinsiefni/sápu án klórs til að
þurrka leifar og óhreinindi af vörunni og leyfa
henni síðan að þorna fyrir sótthreinsun.
Efni
• Ál
• Gúmmí
• Plast
• Stál
• Efni
• Svampur
Yfirborðsmeðhöndlun
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yfirborðs
hafa verið notaðar til að verjast tæringu:
• Lakkað yfirborð = pólýesterdufthúðun
eða ED-húðun
• Ólakkaðir hlutar úr áli = rafhúðun
• Ólakkað yfirborð úr stáli = sinkhúðun
129
etac.com