NOTKUNARLEIÐ BEININGAR
RG - 350
( IS )
VARÚÐ!
Lestu allar leiðbeiningarnar áður en þú
byrjar að nota vélina.
Varist að skera hendurnar á beittum hnífum
og lausum vélarhlutum.
Settu aldrei hendurnar í handstýrða fóðrara.
Notið ávallt stautinn þegar skorið er með
matarapípunni, og setjið aldrei hendurnar
inn í matarapípuna.
Haldið aðeins um handfang þrýstimatarans,
Ergo Loop, þegar handstýrði matarinn er
opnaður eða honum lokað.
Kjarnahreinsibúnaðinn þarf að herða
(rangsælis) og losa (réttsælis) með
skrúflykli.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt
að tengja þriggja fasa útgáfuna af RG-350
vélinni.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
gera við vélina og opna vélarhúsið.
Notið ekki vélina til að skera frosin matvæli.
Fjarlægið alla harða hluta úr matnum áður
en hann er skorinn (t.d. eplakjarna, trénaða
hluta næpa o.s.frv.) til að skemma ekki
hnífana.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar af
börnum eða einstaklingum með skerta
líkamlega, skyn- eða andlega getu eða skort
á reynslu á tækjum sem þessu, nema viðko-
mandi einstaklingur hafi hlotið fullnægjandi
leiðsögn eða tilsögn um notkun tækisins.
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
Gætið þess að allir hlutar fylgi vélinni, að vélin
sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í flutningi.
Athugasemdir verða að hafa borist seljanda
innan átta daga.
UPPSETNING
Tengdið vélina við rafstraum með réttri uppge-
finni spennu.
Vélinni ætti að vera komið fyrir á bekk eða borði
sem er um 500 mm á hæð.
Setjið veggfestinguna fyrir skurðarverkfærin á
vegg nálægt vélinni til hægðarauka og öryggis.
Athugið næstu tvö atriði án þess að skurðar-
verkfæri eða frárásarskífa séu fest við vélina.
Gangið úr skugga um að vélin stöðist þegar
handstýrði þrýstimatarinn er færður upp og
honum snúið út og fari aftur í gang þegar
honum er snúið inn og hann færður niður.
Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að
ræsa vélina þegar matarahólkurinn hefur
HALLDE • User Instructions
verið fjarlægður og handstýrði þrýstimatarinn
færður niður.
Ef vélin virkar ekki rétt ber að kalla til löggiltan
fagmann til að laga gallann áður en vélin er
tekin aftur í notkun.
KANNIÐ ÁVALLT FYRIR
NOTKUN
MEÐ HANDSTÝRÐA MATARANUM:
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Gangið úr skugga um, þegar skurðarverkfæri
er í vélinni, að hún stöðvist innan 2 sekúndna
þegar þrýstiplatan er færð til hliðar og fari
aftur í gang þegar þrýstiplatan er færð aftur
yfir matarann.
Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að
ræsa vélina þegar matarahólkurinn hefur
verið fjarlægður og handstýrði þrýstimatarinn
færður niður.
Ef annar öryggisþáttanna virkar ekki eins og
hann á að gera eða ef rafmagnssnúran er
ekki heil ber að kalla til löggiltan fagmann eða
rafvirkja til að laga gallann áður en vélin er aftur
tengd við rafmagn.
Gangið úr skugga um að þrýstiplötuöxullinn
snúist óhindrað. Ef öxullinn snýst ekki óhindrað
skal þrífa hann vandlega og smyrja með
nokkrum dropum af vélaolíu.
Gangið úr skugga um að skurðarverkfærin séu
heil og bíti vel.
Upplýsingar um skurðarverkfærin eru á síðum
42.
VINNSLUGERÐIR
Sneiðir, sker í teninga, rífur, tætir og sker í
strimla í ýmsum stærðum, eftir því hvaða
skurðarverkfæri er valið. Vinnur grænmeti,
ávexti, brauð, ost, hnetur, sveppi o.s.frv.
NOTENDUR
Veitingastaðir, verslunareldhús, spítalar,
mötuneyti, elliheimili, skólar, skyndibitastaðir,
veisluþjónustur, dagheimili, salatbarir, pítsus-
taðir, skip, iðnaðareldhús o.s.frv.
VINNSLUGETA
Allt að 1.500 skammtar á dag og 15 kíló á
mínútu.
NOTKUN MATARA
HANDSTÝRÐI MATARINN:
Handstýrður matari: Stóra matarahólfið er
einkum notað til að vinna með matvæli í miklu
magni og skera stærri vörur eins og hvítkál.
Stóra matarahólfið er líka notað þegar skera
á matvælin frá ákveðinni hlið, eins og tómata
og sítrónur. Komið vörunni fyrir eins og sýnt
er á myndinni.
Innbyggða matarapípan er notuð til að skera
langt og mjótt hráefni eins og gúrkur, sjá mynd.
SAMSETNING
HANDSTÝRÐI MATARINN:
Komið matarahólknum fyrir og snúið
læsihnappnum réttsælis eins langt og hann
kemst (í læsta stöðu).
Takið um þrýstimatarann með báðum höndum
og stingið öxulendanum inn í festinguna á
vélinni.
Ýtið þrýstimataranum niður með lófa hægri
handar eins langt og hann kemst, sjá mynd.
LOSUN
HANDSTÝRÐI MATARINN:
Lyftið þrýstimataranum og snúið honum út til
vinstri svo matarahólkurinn opnist.
Takið um þrýstimatarann með báðum höndum.
Dragið þrýstiplötuna upp og út með hægri
hendinni.
SKURÐARVERKFÆRUNUM
KOMIÐ FYRIR
Lyftið handfangi þrýstimatarans og snúið því
út til vinstri.
Snúið læsihnappnum rangsælis og hallið mata-
rahólknum fyrir handstýrða matarann.
Setjið frárásarskífuna á öxulinn, snúið henni og
þrýstið henni niður svo hún festist á sínum stað.
Setjið valið skurðarverkfæri á öxulinn og snúið
því þar til það festist á sínum stað.
Skorið í teninga: komið teningagrind fyrir
þannig að egg hnífanna vísi upp, og skoran á
hlið teningagrindarinnar passi inn í stilligrópina
á vélinni. Setjið svo skurðarskífuna á öxulinn
þannig að hún festist á sínum stað.
Þegar þrýstimatarinn er notaður skal koma
kjarnahreinsibúnaðinum fyrir með því að snúa
honum rangsælis með skrúflykli á miðjuöxul
skurðarverkfærisins.
Þegar sjálfmatarinn er notaður skal koma
hrærislífinni fyrir með því að snúa henni
rangsælis með skrúflykli á miðjuöxul skurðar-
verkfærisins.
Setjið niður matarahólkinn fyrir handstýrða
matarann/sjálfmatarann og snúið læsihnappi
hans réttsælis í læsta stöðu.
SKURÐARVERKFÆRI
FJARLÆGÐ
Lyftið handfangi þrýstimatarans og snúið því
út til vinstri.
Snúið læsihnappnum rangsælis og lyftið
handstýrða þrýstimataranum til hægri.
Fjarlægið kjarnahreinsibúna hrærislífina með
því að snúa þeim rangsælis með skrúflykli.
Fjarlægið skurðarverkfærið/verkfærin og
frárásarskífuna.
27