28
Viðhald og umhirða á bílskúrshurðaropnaranum
VIÐHALDSÁÆTLUN
MÁNAÐARLEGA
•
Opnið og lokið hurðinni handvirkt. Kallið til fagaðila í hurðarkerfum ef hún er óstöðug eða festist.
•
Gætið að hvort hurðin opnist og lokist alveg. Stillið ferilinn ef nauðsyn krefur (sjá atriði nr. 20, „Forritun hurðarferils").
•
Endurtakið prófunina á öryggisopnunarkerfinu. Gerið allar nauðsynlegar stillingar (sjá atriði nr. 21 „Öryggisopnunarkerfið prófað").
ÁRLEGA
•
Smyrjið kefli, legur og hjarir. Ekki þarf að smyrja bílskúrshurðaropnarann. Ekki smyrja hurðarbrautirnar.
LED-LJÓS MYQ-FJARSTÝRINGARINNAR
•
Takið ljósið úr sambandi áður en það er þrifið.
•
Notið rakan klút við þrifin.
•
EKKI NOTA hreinsivökva á linsuna á ljósinu
29
Skipt um rafhlöðurnar í fjarstýringunni
Rafhlöðurnar í fjarstýringunni:
Rafhlöðurnar í fjarstýringunni endast í mjög langan tíma. Skipta verður um rafhlöðurnar ef drægi minnkar. Rafhlöðurnar falla ekki undir ábyrgðina.
Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum varðandi rafhlöður:
Ekki skal meðhöndla rafhlöður eins og venjulegt heimilissorp. Allir neytendur eru skyldugir samkvæmt lögum að farga rafhlöðum á réttan hátt á
tilgreindum endurvinnslustöðvum. Aldrei skal endurhlaða rafhlöður sem ekki eru hleðslurafhlöður.
Sprengihætta!
Geymið rafhlöðurnar þar sem börn ná ekki til. Ekki skal valda skammhlaupi í rafhlöðunum né taka þær í sundur. Leitið tafarlaust til læknis ef rafhlaða
er gleypt. Ef nauðsyn krefur skal þrífa snerturnar á rafhlöðunni og tækjunum áður henni er stungið aftur í. Fjarlægið umsvifalaust tómar rafhlöður úr tækinu!
Annað eykur hættuna á að þau leki!
Hafið rafhlöður aldrei í miklum hita eins og sólskini, eldi eða því um líku!
Slíkt eykur hættuna á að þau leki!
Varist snertingu við húð, augu og slímhúð. Skolið líkamshluta sem verða fyrir rafgeymasýru með miklu magni af köldu vatni og leitið
umsvifalaust til læknis. Notið eingöngu rafhlöður af sömu gerð. Fjarlægið rafhlöðurnar ef ekki á að nota tækið í lengri tíma.
Skipt um rafhlöðu:
Þegar skipta á um rafhlöðu skal snúa fjarstýringunni við og opna hlífina með skrúfjárni. Lyftið hlífinni og lyftið upp stjórnborðinu fyrir neðan. Rennið
rafhlöðunni til hliðar og fjarlægið hana. Gætið þess að rafhlöðurnar snúi rétt! Setjið síðan saman í öfugri röð.
ATTENTION!
Hætta er á sprengingu ef skipt er um rafhlöðu á rangan hátt. Aðeins skal skipta út með rafhlöðu af sömu eða jafngildri gerð (CR2032) 3V.
30
Förgun
Ekki er heimilt að farga raftækjum eða rafeindabúnaði frá okkur með venjulegu heimilissorpi, heldur þarf að losa sig við þau í samræmi
við WEEE viðmið 2012/EU, (UK/SI 2012 No. 19) sem notuð raftæki og rafeindabúnaður til þess að tryggja að búnaðurinn sé endurun-
ninn. Flokkun raftækja og rafeindabúnaðar gerir kleift að farga honum á umhverfisvænann máta og er algerlega að kostnaðarlausu fyrir
viðskiptavininn.
WEEE skrásetningarnr. í Þýskalandi: DE66256568.
Hverjar þær umbúðir sem viðskiptavinur þarf að farga ber að flokka með blönduðu sorpi í samræmi við viðmiðin. Ekki má farga umbúðum með
heimilissorpi, lífrænum úrgangi eða garðaúrgangi. Umbúðir ber að flokka eftir tegund efnis og koma fyrir í endurvinnslugámum eða sérstökum
ruslafötum sem sveitarfélagið býður upp á.
Rafhlöðurnar frá okkur eru markaðssettar í samræmi við lög. Ruslafötumerkið með krossi yfir táknar að ekki má farga rafhlöðum með
heimilissorpi. Rafhlöður fylgja með vörunni (tæknilegar upplýsingar). Til að koma í veg fyrir umhverfisskaða eða heilsuspillandi áhrif skal
skila rafhlöðum, samkvæmt leiðbeiningum um endurvinnslu, til endurvinnslustöðva eða annara móttökuaðila eins og lög gera ráð fyrir.
Einungis má farga rafhlöðum sem hafa verið afhlaðnar og ef um litíum rafhlöður er að ræða þarf að hylja rafskaut fyrir förgun. Auðvelt er að fjarlægja
rafhlöður úr tækjum okkar til förgunar.
Skráningarnúmer í Þýskalandi: 21002670
14 / is