Télécharger Imprimer la page

LiftMaster LM3800W-2 Mode D'emploi page 376

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 42
2
Fyrirhuguð notkun
Bílskúrshurðaopnarinn er hannaður í samræmi við tilskipanir ESB varðandi vélbúnað 2006/42/EC. Valfrjáls aukabúnaður er fáanlegur og lýst, en
notkun þeirra kann að vera breytileg. Bílskúrshurðaopnaranum er eingöngu ætlað að opna og loka bílskúrshurðum (vinsamlegast leitið upplýsinga í
undirkafla 6 "Tegundir hurða"). Búnaðurinn er ekki ætlaður til notkunar í viðskiptalegum tilgangi heldur einungis á bílskúrshurðum sem eru viðeigandi
fyrir hvert einstaka heimili. Sjáið kröfulýsingu framleiðanda varðandi samsetningu búnaðar og hurða.
Hurðin verður að standast kröfulýsingu ESB um vélbúnað: EN 12064.
Öll röng notkun á búnaðinum getur aukið slysahættu. Framleiðandinn ber enga ábyrgð á slíkri notkun. Aðeins má tengja viðurkennda fylgihluti frá
Chamberlain við búnaðinn. Með þessum búnaði þarf hurð að uppfylla núgildandi alþjóða- og innanlandskröfur, viðmið og ESB reglugerðir: EN 13241/
EN 12543, EN12604.
3
Undirbúningur á notkun hurðar
Skoðið svæðið til að sjá hvort það uppfylli skilyrðin hér á eftir varðandi uppsetningu.
Hugsanlega er þörf á frekara efni, allt eftir því hvernig notkun hurðarinnar er háttað.
ÞESSI HURÐAROPNARI ER SAMHÆFUR VIÐ EFTIRFARANDI:
Hurðir með snerilfjöður og gormum. Snerilfjöðrin skal vera 25,4 í þvermál. Hún er EKKI samhæf við kefli með öfugum snúningi.
80-120 mm kefli, má ekki nota með keilulaga keflum sem eru yfir 120 mm.
Hlutaskiptar hurðir með staðlaðri lyftu sem eru allt að 3 m á breidd.
Hurðir sem eru allt að 5,5 m á breidd.
Hurðir sem eru allt að 16.5 m².
ATHUGIÐ: Fylgist með snerilfjöðrinni á meðan hurðin er hækkuð og lækkuð. Afar mikilvægt er að engin hreyfing sé greinanleg upp og niður á við
né til vinstri eða hægri. Endingartími bílskúrshurðarinnar styttist verulega ef slíkar hreyfingar eru ekki lagfærðar
Farið yfir eða skoðið fyrirhugað uppsetningarsvæði. Bílskúrshurðaopnarann er hægt að setja upp vinstra eða hægra megin við hurðina. Veljið þá hlið
sem uppfyllir kröfurnar hér á eftir.
a. Bilið á milli veggsins og miðju snerilfjaðrarinnar skal vera að lágmarki 6,4 cm.
b. Bilið á milli loftsins og miðju snerilfjaðrarinnar skal vera að lágmarki 7,6 cm.
c. Bilið á milli hliðarveggjarins (eða hindrunar) og enda snerilfjaðrarinnar skal vera að lámarki 21,6 cm.
d. Snerilfjöðrin verður að ná að minnsta kosti 3,81 cm fram yfir leguna. Slíkt er þó breytilegt eftir því hvernig uppsetningunni er háttað.
e. Rafmagninnstunga þarf að vera innan 1,83 m frá uppsetningarsvæðinu. Hafið samband við löggiltan rafvirkja ef innstunga er ekki til staðar.
4
Undirbúningur fyrir notkun MyQ
Þessu tæki má stjórna með MyQ – setja þarf upp ljósnema. Notið MyQ-forritið til að fylgjast með og stjórna bílskúrshurðinni hvar sem er.
ÁÐUR EN HAFIST ER HANDA:
Wi-Fi tengdan snjallsíma, spjaldtölvu eða fartölvu
Nettengingu um breiðband
Wi-Fi-merki í bílskúrnum (2,4 Ghz, 802.11b/g/n áskilið)
Aðgangsorð fyrir heimanetið (fyrir aðalreikning beinisins, ekki
gestareikning)
PRÓFIÐ STYRKLEIKA WI-FI-MERKISINS
Gætið þess að fartækið sé tengt við Wi-Fi-netið. Haldið fartækinu á
þeim stað sem bílskúrshurðaopnarinn verður settur upp á og athugið
styrkleika Wi-Fi-merkisins þar.
Wi-Fi-merkið er öflugt.
Bílskúrshurðaopnarinn mun ná tengingu við Wi-Fi-netið.
Wi-Fi-merkið er veikt.
Bílskúrshurðaopnarinn gæti tengst við Wi-Fi-netið. Ef það tekst
ekki skal prófa einn af valkostunum hér að neðan til að styrkja
Wi-Fi-merkið:
Ekkert Wi-Fi-merki.
Bílskúrshurðaopnarinn getur ekki tengst við Wi-Fi-netið. Veldu einn
af valkostunum hér að neðan til að auka styrk Wi-Fi-merkisins.
Færðu beininn nær bílskúrshurðaopnaranum til að
draga úr truflunum sem verða vegna veggja og annarra hluta
Festið kaup á tæki sem stækkar Wi-Fi-sendisviðið
3 / is

Publicité

loading