•
Til að draga úr hættu á of lítið elduðu
kjöti ætti að skera í það og athuga hvort
það sé tilbúið.
•
Mælt er með foreldun á stærri
kjötstykkjum áður en þau eru sett á
grillið.
•
Eftir notkun á grillinu ætti alltaf að þrífa
bæði grillgrindina og áhöldin.
Umhirða, viðhald og geymsla
•
Þrífðu grillið reglulega milli þess sem
það er notað og sérstaklega eftir að það
hefur staðið óhreyft lengi.
•
Gættu þess að grillið og allir hlutar þess
séu orðnir kaldir áður en grillið er þrifið.
•
Aldrei hella vatni yfir grillið á meðan það
er enn heitt.
•
Snertu aldrei heitt grill með berum
höndum.
•
Breiddu alltaf yfir grillið þegar það er
ekki í notkun. Geymdu grillið í skýli eða
skúr til að vernda það gegn veðrun.
•
Sólarljós, vatn og saltvatn getur allt
valdið skemmdum á grillinu. (Í sumum
tilfellum er yfirbreiðsla ekki nóg).
•
Til að lengja líftíma grillsins og halda því
við, mælum við sterklega með að breitt
sé yfir það ef það stendur úti í lengri
tíma, sérstaklega yfir vetrartímann.
•
Áður en grillið er sett í geymslu til lengri
tíma, skaltu ganga úr skugga um að
aska og kol séu fjarlægð úr grillinu.
21