IKEA KLASEN Mode D'emploi page 20

Masquer les pouces Voir aussi pour KLASEN:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 10
eða kveikjaravökva til að kveikja upp í
grillinu eða glæða eldinn! Notaðu aðeins
kveikjara sem uppfylla viðeigandi staðla
í viðkomandi löndum (utan Evrópu).
Ekki láta feiti, fitu eða matarleifar
safnast upp í eða á grillinu - ELDHÆTTA.
Hengdu ekki hluti úr eldfimu efni á
handfangið á grillinu.
Skiptu alltaf um skemmda hluti - ekki
nota ef skemmdir finnast.
Gættu þess að ofhlaða ekki grillið með
mat. Dreifið grillmeti jafnt á grillið.
MIKILVÆGT! Tryggðu að grillið standi á
sléttu yfirborði svo feiti/fita renni úr því.
Gakktu úr skugga um að grillið sé rétt
sett saman samkvæmt leiðbeiningum.
Opnaðu lokið á meðan kveikt er upp í
grillinu.
Notaðu grillið aldrei á lokuðum eða þröngum
svæðum eða á íbúðarhæfum svæðum eins
og húsum, tjöldum, hjólhýsum, húsbílum,
bátum. Hætta á kolsýringseitrun.
YFIRLIT
Tölurnar vísa til númeranna á teikningu af
grillinu á myndasíðunni.
1. Handfang
2. Lok
3. Grillgrind
4. Bakki fyrir kol
5. Bakki fyrir ösku
NOTENDALEIÐBEININGAR
Gætið þess að lesa og taka til greina
varúðarskilaboðin í þessari handbók áður en
lengra er haldið.
Notið aldrei hrjúf áhöld á grillgrindina (3)
svo hún skemmist ekki.
Undirbúningur fyrir eldamennsku - Til að
hindra að maturinn festist við grillið ætti
alltaf að bera olíu á grindina með bursta/
pensli með löngu handfangi áður en grillað
er.
Athugið: Þegar grillið er notað í fyrsta skipti
má búast við því að málningin utan á grillinu
breyti aðeins um lit vegna hitans. Það er
eðlilegt og við því má búast.
Kveikt upp í grillinu
Opnaðu lokið (2).
Leggðu jafnt lag af kolum, u.þ.b. 4-5 cm, á
kolabakkann (4).
Bættu varlega við kveikilegi/-geli.
Kveiktu upp í kolunum með löngum
kveikjara eða langri eldspýtu.
Þegar logarnir deyja út ætti að gæta að
hvort glóð lifi örugglega í kolunum.
Mælt er með að láta kolin standa glóandi í
30-40 mínútur áður en grillað er.
Ekki byrja að grilla fyrr en kolin eru hulin
grárri ösku.
Að notkun lokinni
Notið tusku, heitt vatn og uppþvottalög til
að þrífa grillið. Notið ekki hrjúf hreinsiefni.
Það veldur skemmdum ef notuð eru hrjúf
hreinsiefni eða beitt áhöld á grillið.
Mataröryggi
Vinsamlega lesið og fylgið eftirfarandi ráðum
við eldamennsku á grillinu þínu:
Þvoið alltaf hendur bæði fyrir og eftir
meðhöndlun á hráu kjöti og eins áður en
matast er.
Haldið hráu kjöti alltaf aðskildu frá
elduðu kjöti og öðrum mat.
Gætið þess að grillið og áhöldin séu
hrein áður en eldamennska er hafin.
Notið ekki sömu áhöld fyrir hrá og elduð
matvæli.
Gætið þess að elda kjöt í gegn áður en
það er borðað.
20

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières