Almennt
Takk fyrir að velja vöru frá Etac. Mikilvægt er að lesa
þessa handbók og varðveita til að forðast skemmdir
við samsetningu, meðferð og notkun. Einnig má finna
hana á www.etac.com. Hægt er að velja tungumálið í
gegnum „alþjóðlegan" og „staðbundinn vefsíðuhlekk".
Hér má einnig finna önnur fylgigögn vörunnar svo sem
upplýsingar um tilvísun og leiðbeiningar fyrir kaup og
endurgerð.
Í handbókinni er notandinn sá sem situr í stólnum.
Umönnunaraðili er sá sem hjálpar notandanum.
Vörulisti:
= Gildir um,
= Fylgihlutir
Sjá vörulista til hægri sem sýnir þær upplýsingar sem
eiga við um hverja vöru.
Myndirnar sem vísað er í á hverri síðu er að finna
í upphafi handbókarinnar (bls. 3 til 12). Sjá myndir
A til F fyrir samsvarandi texta.
Lýsing á tæki
Swift Mobil-2-línan er úrval af færanlegum sturtustólum
en þar af eru Swift Mobil-2 og Swift Mobil Tilt-2 notaðar
af aðstoðarfólki en Swift Mobil 24"-2 getur notandinn
sjálfur stýrt. Með sérstillingum og aukahlutum er hægt
að laga búnaðinn að þörfum hvers notanda.
Tilgangur
Swift Mobil-2, Swift Mobil-2 XL, Swift Mobil 24"-2,
Swift Mobil Tilt-2 og Swift Mobil Tilt-2 XL (hér eftir
kölluð „tækið" eða „varan") eru lækningatæki ætluð
til að draga úr virkniskerðingu vegna áverka eða
hreyfihömlunar, eða bæta upp fyrir slíka virkniskerðingu.
Varan er hönnuð til að sinna persónulegu hreinlæti
í sturtu, við vask eða yfir klósetti og einnig fyrir flutning
til og frá baðherbergi.
Fyrirhugaður notendahópur
Notendahópur vörunnar byggist á virknigetu hvers
og eins en er ekki bundinn við sérstaka greiningu,
heilsufarsástand eða aldur. Þær eru ætlaðar fyrir
einstaklinga 146 cm að hæð eða hærri eða einstaklinga
sem vega 40 kg eða meira.
Aðrir notendur vörunnar eru umönnunaraðilar sem veita
aðstoð og aðilar sem setja vöruna upp.
Fyrirhugað umhverfi
Varan er ætluð til notkunar innandyra á heimilum eða
stofnunum og hentar til notkunar á baðherbergjum. Hún
hentar ekki til notkunar í sundlaugum eða á svipuðum
stöðum þar sem hætta er á tæringu vörunnar.
Fyrirhuguð notkun
Varan er ætluð til notkunar í styttri eða lengri tíma
og hana má nota nokkrum sinnum á dag.
Tækið er ætlað til notkunar í snertingu við óskaddaða
húð. Varan er ætluð til endurnýtingar og hana má
endurbæta.
Áætlaður endingartími
Áætlaður endingartími er 10 ár. Nánari upplýsingar um
endingartíma vörunnar er að finna á www.etac.com.
Ábendingar
Ábending fyrir notkun er fötlun, meðal annars hjá
einstaklingum með líkamlega fötlun sem þurfa
á bakstoð og/eða sætisarmi að halda til að halda
sitjandi stöðu og aðstoð við flutning í eða úr stólnum.
Frábendingar:
Það eru engar þekktar frábendingar.
Varnaðarorð
Finna má varnaðarorð með lýsingum á áhættuþáttum
fyrir tilteknar athafnir eða stillingar vörunnar
í viðkomandi kafla.
Tryggið að hjólin séu læst þegar notandi sest
í stólinn eða stendur upp úr honum.
Ekki má nota gallað tæki.
Athugið næmi notanda fyrir þrýstingssárum
fyrir notkun
Vara sem hitnar getur valdið bruna
Hætta er á að líkamshlutar klemmist þegar bekken
er sett á eða fjarlægt
Samræmisyfirlýsing
Varan uppfyllir kröfur reglugerðar um lækningatæki
(ESB) 2017/745.
Varan hefur verið prófuð og uppfyllir skilyrði staðla
EN ISO 10993-1, ISO 17699:2016.
Upplýsingar fyrir kaup
Upplýsingar fyrir kaup er að finna á www.etac.com.
Aukaverkun
Ef vart verður við aukaverkanir í tengslum við tækið
skal tilkynna slík tilvik tímanlega til næsta söluaðila
og lögbærra landsyfirvalda. Söluaðili áframsendir
upplýsingar til framleiðanda.
Sérstilling
eru allar frekari stillingar sem ekki eru í leiðbeiningum og
stillingum handbókarinnar. Vara sem hefur verið sérstillt
af viðskiptavinum má ekki halda CE-merkingu Etac.
Ábyrgð Etac rennur út.
Ef einhver óvissa er til staðar varðandi framkvæmd
sérstillingar skal hafa samband við Etac.
Vara sem tengd er við aðra vöru má ekki halda
CE-merkingu hvorrar vöru nema samsetningarsamningar
séu fyrir hendi. Hafið samband við Etac til að fá nýjustu
upplýsingar.
73
Etac / Swift Mobil-2 / www.etac.com
is