Télécharger Imprimer la page

Bosch Purion 200 Notice D'utilisation D'origine page 110

Masquer les pouces Voir aussi pour Purion 200:

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 21
Íslenska – 8
Númer
Leiðbeiningar
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi:
– Snúðu þér til söluaðila fyrir Bosch eBike
Systems.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Ekki má þrífa neina hluta búnaðarins með háþrýstidælu.
Halda skal skjá stjórnbúnaðarins hreinum. Óhreinindi geta
leitt til þess að greining á birtustigi virki ekki rétt.
Við þrif á stjórnbúnaðinum skal eingöngu nota mjúkan klút
sem hefur verið vættur með vatni. Ekki má nota hreinsiefni.
Athugaðu: Við tiltekið hita- og rakastig getur myndast móða
á stjórnbúnaðinum Purion 200. Þetta þýðir ekki að eitthvað
sé í ólagi. Látið rafhjólið standa í upphituðu rými.
Láta skal skoða rafhjólið að minnsta kosti einu sinni á ári
(m.a. vélbúnað þess og hvort kerfishugbúnaður er í nýjustu
útgáfu).
Söluaðili reiðhjólsins getur einnig skráð tiltekna vegalengd
og/eða tiltekið tímabil fyrir skoðun. Í þessu tilviki sýnir
stjórnbúnaðurinn hvenær næsta skoðun á að fara fram þegar
kveikt er á honum.
Láta skal viðurkenndan söluaðila reiðhjóla sjá um að
þjónusta rafhjólið og gera við það.
Láta verður viðurkenndan söluaðila reiðhjóla annast
u
allar viðgerðir.
Athugaðu: Þegar farið er með rafhjólið í viðhaldsskoðun hjá
söluaðila er mælt með því að gera <Lock & Alarm> óvirkan.
Athugaðu: Ef stjórnbúnaðurinn Purion 200 er ekki notaður í
lengri tíma þarf að hlaða hann, (sjá „Rafmagnstenging
stjórntölvunnar", Bls. Íslenska – 3).
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og hluta þess skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Hægt er að skila tækinu til söluaðila ef hann býður upp á slíkt
eða ber lagaleg skylda til þess. Fara skal eftir gildandi lögum
og reglum hvað þetta varðar.
Skila skal drifeiningunni, hjólatölvunni ásamt
stjórnbúnaðinum, rafhlöðu rafhjólsins,
hraðaskynjaranum, aukabúnaði og umbúðum
til endurvinnslu með umhverfisvænum hætti.
0 275 007 3RP | (02.05.2024)
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
persónuupplýsingum hafi verið eytt úr tækinu.
Ef hægt er að taka rafhlöður úr raftækinu án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en tækinu er fargað.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Með því að flokka raftækin sérstaklega er stuðlað að því að
hægt sé að meðhöndla þau og endurnýta hráefni með
viðeigandi hætti og vernda þannig heilsu manna og
umhverfið.
Breytingar áskildar.
Bosch eBike Systems

Publicité

loading

Ce manuel est également adapté pour:

Brc3800