Íslenska – 6
– Hallaðu rafhjólinu til hliðar.
Þegar búið er að virkja teymingarhjálpina byrjar drifið að ýta
hjólinu og upplýsingarnar á skjánum breytast.
Þegar hnappinum fyrir teymingarhjálp (6) er sleppt er gert
hlé á teymingarhjálpinni. Hægt er að gera teymingarhjálpina
virka aftur með því að ýta á hnappinn fyrir teymingarhjálp (6)
innan 10 sekúndna.
Ef teymingarhjálpin er ekki gerð virk aftur innan 10 sekúndna
slekkur hún sjálfkrafa á sér.
Alltaf er slökkt á teymingarhjálpinni þegar
– afturhjólið læsist,
– ekki er hægt að hjóla yfir fyrirstöður,
– líkamshluti hindrar hreyfingu sveifarinnar á hjólinu,
– hindrun snýr sveifinni áfram,
– notandi stígur á fótstigin,
– ýtt er á hnappinn til að auka stuðning +/hjólaljós (5) eða
hnappinn til að kveikja/slökkva (1).
Teymingarhjálpin er með rennivörn, sem þýðir að jafnvel þótt
teymingarhjálpin sé notuð hemlar drifið í nokkrar sekúndur
til að koma í veg fyrir að hjólið renni aftur á bak og ýmist er
ekki hægt að ýta rafhjólinu aftur á bak eða þá einungis með
erfiðismunum.
Slökkt er á rennivörninni um leið og ýtt er á hnappinn til að
auka stuðning +/hjólaljós (5).
Virkni teymingarhjálparinnar fer eftir reglum í hverju landi
fyrir sig og getur hún því ýmist verið með öðrum hætti en lýst
er hér að ofan eða óvirk.
ABS – hemlalæsivörn (aukabúnaður)
Ef rafhjólið er búið ABS-kerfi frá Bosch sem tilheyrir
kynslóðinni the smart system logar ABS-táknið þegar
rafhjólið er sett í gang.
Þegar hjólað er af stað framkvæmir ABS-kerfið innri
virkniprófun og ABS-táknið slokknar.
Ef villa kemur upp logar ABS-táknið og tilkynning birtist á
skjánum. Það þýðir að ABS-kerfið sé óvirkt. Hægt er að
staðfesta villuna með valhnappinum (4) og tilkynningin um
villu í ABS-kerfinu hverfur þá af skjánum. ABS-táknið birtist í
stöðustikunni og gefur áfram til kynna að slökkt sé á ABS-
kerfinu.
Nánari upplýsingar um ABS-kerfið og virkni þess er að finna í
notendahandbókinni fyrir ABS-kerfið.
Tengst við farsíma
Til þess að hægt sé að nota eftirfarandi eiginleika rafhjólsins
þarf farsíma með appinu eBike Flow.
Tengst er við appið með Bluetooth®.
Kveiktu á rafhjólinu og bíddu þar til hreyfimyndin fyrir
ræsingu birtist. Ekki hjóla af stað.
Settu Bluetooth®-pörunina í gang með því að halda
hnappinum til að kveikja/slökkva (1) inni (> 3 sek.). Slepptu
hnappinum til að kveikja/slökkva (1) um leið og staða
pörunar er sýnd.
Staðfestu fyrirspurnina um tengingu í appinu.
0 275 007 3RP | (02.05.2024)
Virkniskráning
Til þess að skrá upplýsingar um virkni þarf að nýskrá sig eða
skrá sig inn í appinu eBike Flow.
Til þess að hægt sé að skrá upplýsingar um virkni þarftu að
samþykkja að staðsetningarupplýsingar séu vistaðar í
appinu. Þetta er nauðsynlegt til þess að hægt sé að skrá
virkni þína í appinu. Til þess að hægt sé að skrá
staðsetningarupplýsingar þarftu að vera skráð(ur) inn sem
notandi.
eBike Lock
Hægt er að setja <eBike Lock> upp fyrir öll rafhjól með
appinu eBike Flow, undir <Settings> → <My eBike> →
<Lock & Alarm>. Er þá vistaður lykill í farsímanum og/eða
hjólatölvunni Kiox 300/Kiox 500 sem er notaður til að taka
rafhjólið úr lás.
Í eftirfarandi tilvikum er <eBike Lock> settur sjálfkrafa á:
– þegar slökkt er á rafhjólinu með stjórnbúnaðinum
– þegar slökkt er sjálfkrafa á rafhjólinu
Rafhjólið er tekið úr lás þegar kveikt er á því og farsíminn er
tengdur við rafhjólið í gegnum Bluetooth® eða þegar
fyrirfram skilgreinda hjólatölvan er sett í festinguna.
<eBike Lock> er bundinn við notandareikninginn þinn.
Ef þú týnir farsímanum þínum getur þú skráð þig inn með
appinu eBike Flow og notandareikningnum þínum í öðrum
farsíma til þess að taka rafhjólið úr lás.
Ef hjólatölvan týnist er hægt að núllstilla alla stafræna lykla í
valmyndaratriðinu <Lock & Alarm> í appinu eBike Flow.
Aðgát! Þegar valin er stilling í appinu sem hefur neikvæðar
afleiðingar fyrir <eBike Lock> (t.d. þegar rafhjólinu eða
notandareikningnum er eytt) eru birtar viðvaranir áður en
breytingin er staðfest. Lesa skal viðvaranirnar vandlega og
fara eftir þeim (t.d. áður en rafhjólinu eða
notandareikningnum er eytt).
<eBike Lock> settur upp
Til þess að hægt sé að setja <eBike Lock> upp þurfa
eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:
– Appið eBike Flow hefur verið sett upp.
– Búið er að stofna notandareikning.
– Ekki er verið að setja upp uppfærslu á rafhjólinu.
– Rafhjólið er tengt við farsímann í gegnum Bluetooth®.
– Rafhjólið er kyrrstætt.
– Farsíminn er tengdur við internetið.
– Nægileg hleðsla er á rafhlöðu rafhjólsins og hleðslusnúran
er ekki tengd.
Hægt er að setja <eBike Lock> upp í appinu eBike Flow, í
valmyndaratriðinu <Lock & Alarm>.
Drif rafhjólsins veitir ekki stuðning nema að farsíminn sé
tengdur við rafhjólið með Bluetooth® eða hjólatölvan sé í
festingunni þegar kveikt er á rafhjólinu. Þegar farsíminn er
notaður sem lykill þarf að vera kveikt á Bluetooth® í
farsímanum og appið eBike Flow þarf að vera virkt í
bakgrunni. Þegar <eBike Lock> er virkur er áfram hægt að
nota rafhjólið án stuðnings frá drifeiningunni.
Bosch eBike Systems