Télécharger Imprimer la page

Etac R82 High-low:xo Mode D'emploi page 142

Publicité

Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi við tæki í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð
tækisins að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notenda
og/eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki sinna þjónustu og viðhaldi
á meðan varan er í notkun. Ef þörf krefum skal hafa samband við söluaðila á staðnum til að fá
aðstoð við uppsetningu, notkun eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi við tækið.
Endingartími
Endingartími vörunnar við venjulega notkun er
8 ár ef öllu viðhaldi og þjónustu er sinnt sam-
kvæmt leiðbeiningum framleiðanda og skráð
svo hægt sé að sýna fram á það. Tækið verður
hugsanlega gefið út aftur innan endingartíma
þess.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana getur breyst eftir notkun og sliti.
Mælt er með því að varan sé skoðuð árlega, í
hvert sinn sem varan er endurútgefin til notku-
nar og eftir langtímageymslu (meira
en 4 mánuði). Aðili sem hefur skilning
á notkun vörunnar skal sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Yfirfarið og stillið eftirfarandi í samræmi
við fyrirhugaða notkun:
• Hægt er að hækka og lækka stoðgrindina.
• Á útiútgáfum er hægt að fella þrýstifestin-
guna yfir grindina.
• Ef það er búið loftfylltum dekkjum skaltu
athuga loftþrýstinginn.
• Stilling sætis: Sætið er stillanlegt og helst
í þeirri stöðu sem það er stillt í.
• Tryggið að hjól hreyfist án nokkurrar
fyrirstöðu og að auðvelt sé að nota alla
hjólalása/bremsur. Stillið eftir þörfum
• Herðið rær og bolta á vörunni.
• Berið olíu á framlengingarhluti
• Leitið eftir merkjum um sprungur
eða slitna íhluti.
• Allar merkingar á vörunni eru heilar.
Gerið við eða skiptið um skemmda eða
slitna hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
Þurrka leifar og óhreinindi af vörunni með
klút með volgu vatni og mildu hreinsiefni/
sápu án klórs og láta stólinn síðan þorna fyrir
notkun. Gerið sjónræna skoðun á því hvort
einhverjir hlutir séu skemmdir eða slitnir.
XX
IS
Þvottur
Aðalvara
Vöruna má þvo á 60° hita með mildu þvot-
taefni í 10 mínútur í þvottavél sem er hönnuð
fyrir lækningatæki. Notið þurrkunaraðgerð
vélarinnar til að þurrka vöruna. Fjarlægið allan
aukabúnað
og þvoið hann sérstaklega.
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo þessa vöru og fylgihluti
hennar í höndunum. Notið volgt vatn og milt
hreinsiefni/ sápu án klórs og leyfið öllum
hlutum að þorna fyrir notkun.
Sótthreinsun
Vöruna má sótthreinsa með 70% sótthreinsi-
spritti. Mælt er með því að nota klút með volgu
vatni og mildu hreinsiefni/sápu án klórs til að
þurrka leifar og óhreinindi af vörunni og leyfa
henni síðan að þorna fyrir sótthreinsun.
Efni
• Gúmmí
• Plast
• Stál
Yfirborðsmeðhöndlun
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yfirborðs
hafa verið notaðar til að verjast tæringu:
• Lakkað yfirborð = pólýesterdufthúðun
eða ED-húðun
• Ólakkaðir hlutar úr áli = rafhúðun
• Ólakkað yfirborð úr stáli = sinkhúðun
142
etac.com

Publicité

loading