Outdoorchef AROSA 570 G Manuel page 80

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 19
GEYMSLUMÖGULEIKAR Í AROSA 570 G
Á öllum AROSA 570 G-gerðum er festing í skápnum undir grillinu þar sem hægt er að geyma eina Diamond-steypujárnsgrind til viðbótar
og einn pítsastein (hvorugt fylgir með).
UPPLÝSINGAR: Finna má fylgibúnað á borð við Diamond-steypujárnsgrindina og pítsasteininn á WWW.OUTDOORCHEF.COM eða hjá
næsta söluaðila.
GEYMSLUMÖGULEIKI Á GERÐUM MEÐ TAUKLÆÐNINGU (Á AÐEINS VIÐ FYRIR GERÐIR MEÐ TAUKLÆÐNINGU)
Ofangreindum fylgibúnaði er komið fyrir í gegnum opna bakhliðina á grillinu.
Vinstra megin á tauklæðningu Arosa 570 G er op með frönskum rennilás. Einfalt er að skrúfa frá gasinu og fyrir það í gegnum opið.
Auk þess er einfalt að taka fitubakkann úr til að þrífa hann.
AROSA 570 G FÆRT TIL
1
Stöðugt hliðarborðið á Arosa 570 G er einnig notað þegar færa þarf grillið á milli staða.
Hliðarborðið hægra megin er með festingarmöguleika (sjá mynd hér að neðan) – aðeins þarf að lyfta hliðarborðinu til þess að færa grillið til.
2
OUTDOORCHEF.COM
2
158
ÁBENDINGAR
GRILLAÐ Á KÚLUGASGRILLINU
Venjuleg staða
Stærri kjötstykki (t.d. fillet, entrecôte, kótelettur í stykkjum eða heill kjúklingur): Með einstöku trektarkerfinu þarf ekki lengur að snúa stórum
kjötbitum meðan grillað er. Hitinn frá gasbrennaranum stígur upp með innri hliðum grillkúlunnar og dreifist jafnt um hana. Setjið matinn
á forhituðu grillgrindina og setjið lokið á. Gætið þess að hafa alltaf dálítið bil á milli kjötstykkja. Þegar grillað er með lokið á brúnast maturinn
jafnt á öllum hliðum og safinn helst í kjötinu.
Til að tryggja sem bestan árangur þegar grilla á stærri kjötstykki mælum við með því að notaðir séu hitamælar frá okkur, t.d. OUTDOORCHEF
GOURMET CHECK PRO – kjarnhitamælir sem skilar fullkomnum niðurstöðum og er einfalt að stjórna með OUTDOORCHEF-smáforritinu.
Í venjulegu stöðunni er einnig tilvalið að baka. Til dæmis er hægt að gleðja fjölskyldu og vini með heimagerðri pítsu af OUTDOORCHEF-
pítsasteininum sem passar fullkomlega í kúluna. Hitið pítsasteininn fyrst í 20 mínútur á hæstu stillingu áður en pítsan er sett á. Útkoman
verður stökkbakaður pítsabotn alveg eins og á ítölskum veitingastað.
OUTDOORCHEF-grillið verður enn betra með réttum fylgibúnaði. Hvort sem ætlunin er að grilla, elda eða baka: Fáið útrás fyrir tilraunastarfsemi
og sköpunargleði.
Frekari upplýsingar um mikið úrval fylgihluta og smáforritið okkar má finna á: WWW.OUTDOORCHEF.COM
Eldfjallsstaðan
Hentar fullkomlega við notkun á OUTDOORCHEF-fylgihlutum þar sem þörf er á miklum hita neðan frá, til dæmis fyrir fylgihluti eins
og OUTDOORCHEF-steypujárnsplötuna eða OUTDOORCHEF wok-grillpönnuna.
ELDAÐ Á HLIÐARHELLUNNI (Á AÐEINS VIÐ FYRIR GERÐIR MEÐ HLIÐARHELLU)
Hliðarhellan er tilvalin til að elda fjölbreytta forrétti, t.d. hvítlauksrækjur í ólífuolíu, til að elda meðlæti eins og grænmetisrétti eða búa til sósur
á meðan grillað er. Við mælum með OUTDOORCHEF Aroma-pönnunni sem fylgihlut, til að allir réttir heppnist fullkomlega.
Frekari upplýsingar um mikið úrval fylgihluta frá okkur er að finna á: WWW.OUTDOORCHEF.COM
ÞEGAR BÚIÐ ER AÐ GRILLA
1. Stillið gasstillihnappinn fyrir hvern brennara á
.
2. Skrúfið fyrir gasið á gaskútnum.
3. Leyfið grillinu að kólna alveg og þrífið það svo.
4. Setjið yfirbreiðslu yfir grillið.
ÞRIF
Aðeins þarf að hreinsa grillið lítillega eftir hverja notkun þar sem mesta fitan gufar upp eða endar í safnbakkanum. Ef grillið er mjög óhreint skal
hita það í um 10 mínútur á fullum krafti. Notið grillbursta með messinghárum (ekki stálbursta) til að hreinsa trektina og grillgrindina.
VARÚÐ: Við þrif á grillinu innanverðu umhverfis brennarakerfið verður að gæta þess að skemma ekki brennarahlutana.
VARÚÐ: Hreinsið grillið að utanverðu og geymslufleti þess eingöngu með venjulegu mildu hreinsiefni (t.d. venjulegum uppþvottalegi). Ef notaður
er sérstakur grillhreinsir (ekki er mælt með því) mælum við með því að hann sé fyrst prófaður á lítt sýnilegum stað.
GRILLGRINDUR ÚR STEYPUJÁRNI (FYLGJA EKKI MEÐ, SELDAR SÉRSTAKLEGA)
NOTKUN
Skola skal af grillgrindum úr steypujárni með vatni fyrir fyrstu notkun. Ef koma þarf við grindurnar á meðan verið er að grilla verður að klæðast
grillhönskum. Ekki má setja heitar steypujárnsgrindur á fleti sem eru eldfimir eða þola illa hita.
Nota má Grid Lifter til að auðveldara sé að taka steypujárnsgrindurnar úr.
OUTDOORCHEF.COM
159

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Arosa 570 g sbArosa 570 g sb serie

Table des Matières