Télécharger Imprimer la page

ZEKLER 412 RDBH Instructions D'entretien page 171

Masquer les pouces Voir aussi pour 412 RDBH:

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 20
Hljóðinntak utan frá (A:13)
Heyrnarhlífin er með rafrænu hljóðinntaki. Þú getur tengt talstöð eða aðra utanaðkomandi hljóðgjafa í 3,5 mm
hljóðinntak í gegnum tengingarkapalinn (B:6) sem fylgir með. Athugaðu hvort að allt virki sem skyldi áður en
tækið er notað. Ef truflanir eða bilanir koma upp, hafðu samband við framleiðanda.
Viðvörun! Tenging utanaðkomandi hljóðgjafa getur haft í för með sér hljóðstig sem er hærra en daglegt
leyfilegt hljóðálagsstig.
ATH.! Kveikt verður að vera á hljóðstyrksaðgerðinni (A:12 eða A:10) þegar notaður er utanaðkomandi hljóðgjafi.
NOTENDALEIÐBEININGAR FYRIR BLUETOOTH® AÐGERÐIR
Þú getur einnig þurft aðgang að notendaleiðbeiningum fyrir samhæfða einingu Bluetooth® (farsíma, o.s.frv.)
sem er tengt við höfuðbúnaðinn.
Heyrnarhlífin er með stigtakmörkun upp að 82 dB(A) á hljóðum frá hátölurum við eyrað.
Notkun með öðrum Bluetooth®-búnaði
Notkun með öðrum búnaði kemur á þráðlausri tengingu fyrir samskipti á milli tækjanna. Pörun við annan
búnað þarf aðeins að gerast einu sinni fyrir hvert tæki. Höfuðbúnaðurinn getur geymt allt að 8 mismunandi
einingar í minni sínu.
1. Ræstu Bluetooth®-aðgerð höfuðbúnaðarins með því að ýta á og halda niðri Bluetooth®-hnappinum
(A:14) (héðan í frá verður vísað til sem BT-hnappinn) í 3 sekúndur. Hljóðmerki með 4 hækkandi tónum
heyrist í höfuðbúnaðinum. Ljósdíóða höfuðbúnaðarins (A:15) blikkar rauðubláu ljósi til að staðfesta
pörunarham. Slepptu BT-hnappinum.
2. Ræstu Bluetooth®-aðgerðina í símanum þínum (eða í annarri einingu) og leitaðu að og tengdu við nýju
eininguna. Sjá notendaleiðbeiningar fyrir símann þinn (eða aðra einingu). Zekler 412 er
sýndur á skjá símans. Ef síminn þarf PIN-kóða, sláðu inn fjórum núllum (0000).
3. Hljóðmerki með 1 tóni heyrist í höfuðbúnaðinum þegar tengingu hefur verið komið á og hann er tilbúinn
fyrir samskipti. Ljósdíóðan á höfuðbúnaðinum blikkar í bláum lit.
4. Ef pörun mistekst, slökktu á öllum aðgerðum höfuðbúnaðarins og endurræstu frá lið 1.
Hljóðnemi höfuðbúnaðarins (A:7) ætti að vera staðsettur um það bil 1 cm frá munninum svo að besta
bæling hávaða náist og skýrt tal heyrist. Vertu viss um að hljóðneminn beinist að munninum (A:7b).
Þegar pörun Bluetooth®hefur verið virkjuð er tenglinum komið á sjálfkrafa með heyrnartólin næst þegar kveikt
er á heyrnarvörn. Tengingin er staðfest með hljóðmerki í höfuðbúnaðinum og ljósdíóðan blikkar bláu ljósi.
Slökkt á Bluetooth®-aðgerðinni
Ýttu og haltu niðri BT-hnappinum í 6 sekúndur. Hljóðmerki með 4 lækkandi tónum heyrist í höfuðbúnaðinum
sem staðfestir að slökkt hefur verið að Bluetooth®-aðgerðinni.
Svara/ljúka/hafna símhringingu
Flestir símar senda sína eigin símhringingu til höfuðbúnaðarins. Ef ekki, heyrast 4 víxltónar í
höfuðbúnaðinum fyrir símhringingar.
1. Svaraðu símhringingu með því að ýta stutt á BT-hnappinn. 2 hækkandi tónar staðfesta að búið sé að
tengja hringinguna.
2. Ljúktu símhringingu með því að ýta stutt á BT-hnappinn. 1 stuttur tónn staðfestir að búið sé að aftengja
hringinguna.
3. Til að hafna hringingu skal ýta og halda niðri BT-hnappinum í 3 sekúndur. 2 lækkandi tónar staðfesta
að hringingunni hafi verið hafnað.
Endurvelja síðasta símanúmer sem hringt var í
Ýttu stutt 2 sinnum á BT-hnappinn til að endurvelja síðasta símanúmer sem hringt var í.
Hringdu með röddinni frá höfuðbúnaðinum í gegnum tengdan síma
Sjá notendaleiðbeiningar fyrir símann þinn ef hann styður hringingu með röddinni.
1. Ýttu og haltu niðri BT-hnappinum í 2 sekúndur og slepptu honum.
2. Talaðu inn skipun vegna upphringingar.
Flestir símar sem styðja raddstjórnaða upphringingu munu senda staðfestingarmerki þegar þú talar inn
skipun vegna upphringingar.
Flutningur á símhringingum til/frá síma
1. Ýttu á BT-hnappinn í 1 sekúndu til að flytja símhringingu til símans. Stuttur tónn mun staðfesta að
hringingin hafi verið flutt í símann.
2. Ýtið á BT-hnappinn í eina sekúndu til að flytja símtalið aftur í heynartólin.
171

Publicité

loading

Ce manuel est également adapté pour:

412 rdb412 db412 dbh