Notkunarleiðbeiningar
HÄLLDE VCB-61/62
(IS)
VARÚÐ!
Varið ykkur á beittum
hnífblöðunum (A6).
Stingið aldrei hendi eða fingrum
ofan í skálina (A7) eða í
mötunarrörið á lokinu (A3).
Gangið alltaf úr skugga um að
þéttingarhringurinn sé alltaf í
raufinni innan á lokinu (A4) þegar
tækið er í notkun, eins og sést á
mynd D.
Gangið úr skugga um að tappinn
(A2) sé alltaf áfastur við lokið og
stungið rétt í mötunarrörið eins
langt og hann kemst (A3), eins og
sést á mynd F1.
Notið alltaf handföngin (A10) á
hliðunum þegar vélinni er lyft,
aldrei öryggisarminn (A8).
Slökkvið alltaf á vélinni áður en
hún er þrifin með því að seta
valrofann (A11) í O-stöðu og taka
vélina úr sambandi eða slökkva á
straumrofanum.
Aðeins viðurkenndur fagmaður má
gera við vélina eða opna
vélarhúsið (A12).
VÉLIN TEKIN ÚR UMBÚÐUNUM.
Berið saman við afgreiðsluseðil og kan-
nið hvort allir hlutar fylgdu með. Kannið
að vélin sé í lagi og að ekkert hafi
skemmst í flutningi. Kvartanir verða að
hafa borist seljanda innan 8 daga ef
eitthvað vantar upp á.
UPPSETNING.
Setjið vélina í samband á heppilegum
stað í samræmi við merkingar á skiltinu
aftan á vélarhúsinu (A12).
Komið vélinni fyrir á sterkbyggðum
eldhúsbekk eða borði 650 - 900 mm á
hæð.
ÖRYGGISATRIÐI ATHUGUÐ FYRIR
NOTKUN.
Takið lokið (A4) af, fjarlægið hnífa (A6)
og skál (A7) eins og lýst er í kaflanum
"Vélin tekin sundur". Gangið úr skugga
um að vélin fari ekki í gang þegar
hraðastillingin (A11) er í stöðunni I, II
(VCB-62) eða P.
Setjið skálina, lokið og sköfuna á
vélarhúsið eins og lýst er í kaflanum "
Vélin sett saman" en án þess að koma
hnífnum
fyrir
í
skálinni.
hraðastillinguna (A11) í I-stöðu (á við um
VCB-61) eða II (á við um VCB-62) og
færið öryggisarminn (A8) eins langt til
hliðar og hann kemst og kannið hvort
öxullinn (A9) hættir að snúast innan
fjögurra sekúndna.
Ef misbrestur er á þessu verður að kalla
á viðgerðarmann áður en vélin er aftur
tekin í notkun.
TEGUND VINNSLU.
VCB-61/62 sker og hakkar kjöt, fisk,
ávext, grænmeti og hnetur, hrærir sósur,
kryddsmjör, majónes, súpur, salatsósur,
jafning, eftirrétti o.s.frv..
VÉLIN TEKIN SUNDUR.
Færið öryggisarminn (A8) eins langt aftur
og hann kemst (mynd H1).
Takið lokið/sköfuna (A1-A5) af og snúið
sköfuhandfanginu (A1) þannig að það
hylji mötunarrörið (A3) (mynd H2).
Þrýstið sköfuhandfanginu (A1) og
sköfuhringnum (A5) saman (mynd H2)
og snúið um leið sköfuhandfanginu
rangsælis eins langt og það kemst
(mynd H3) og takið hlutana í sundur
(mynd H4).
Fjarlægið hnífinn (A6) og skálina (A7).
VÉLIN SETT SAMAN.
Setjið skálina (A7) á vélarhúsið (A12)
þannig að annar stýripinninn á skálinni
fari ofan í grópina framan/ofan á
vélarhúsinu (mynd B).
Rennið hnífnum (A6) eins langt upp á
öxulinn (A9) og hægt er (mynd C). Ath!
Hnífurinn má ekki vera á þegar
öryggisatriði eru athuguð, aðeins við
vinnslu.
Komið þéttingarhringnum fyrir í raufinni
innan á lokinu (mynd D).
Setjið tappann rétt í mötunarrörið eins
og sést á mynd F1 þannig að hann
standi ekki út úr neðan á lokinu , eins
og sést á mynd F2.
Haldið í miðju sköfuhringsins (AS) með
vinstri hendi samkvæmt mynd G1 og í
mötunarrörið á lokinu (A3) með hægri
hendi og setjið lokið á sköfuhringinn, eins
og sést á mynd G2.
Haldið í sköfuhandfangið (A1) með hægri
hendi og þrýstið miðju þess niður að
miðju loksins eins langt og hægt er, eins
og sést á mynd G3.
Þrýstið
sköfuhringnum
sköfuhandfanginu saman um leið og
sköfuhandfanginu er snúið réttsælis eins
langt og það kemst og hlutarnir haldast
saman, eins og sést á mynd G4.
Setið
Leggið lokið/sköfuna ofan á skálina
þannig að handfang loksins sé beint fyrir
ofan handfangið á skálinni, eins og sést
á mynd G5.
Snúið öryggisarminum (A8) þannig að
hann sé yfir miðju loksins, eins og sést
á mynd G6.
HAFIÐ SKÖFUNA (A1/A5) ALLTAF
Á VIÐ ALLA VINNSLU.
Hafið sköfuna (A1/A5) alltaf á þegar vélin
er notuð þar sem sköfublöðin fjögur
hægja á snúningi þess sem er í skálinni
og beina því inn að miðju/skurðarhluta
hennar.
Með því að færa sköfuhandfangið (A1)
fram og aftur er auðveldlega hægt að
skafa lok og hliðar skálarinnar og láta
matinn færast inn að miðjunni á meðan
vélin er í gangi.
MAGN, STÆRÐIR OG
VINNSLUTÍMI.
Magn og bitastærðir sem hægt er að
vinna í einu sem og vinnslutími fer eftir
því hvað verið er að vinna og hvaða árangri
maður vill ná.
Jafn og góður árangur næst best með
því að hluta fyrst fast hráefni svo sem
kjöt, osta o.s.frv. í nokkurn veginn jafn
stóra bita sem ekki eru stærri en um
tveir sentímetrar á kant.
Hámarksmagn sem vélin getur unnið í
einu: 2 kg kjöt, 2 kg fiskur, 2 kg
kryddsmjör, 4,5 lítrar súpa/sósa/
salatsósa o.s.frv. og 1,5 lítrar steinselja.
VALROFINN (A11).
Þegar valrofinn (A11) er í 0-stöðu er
slökkt á vélinni. Ef valrofinn er í I-stöðu
gengur vélin samfleytt og á lágum hraða
og í II-stöðu (aðeins VCB-62) samfleytt
á háum hraða. Í P-stöðu (púls) gengur
vélin á lágum hraða þangað til rofanum
er sleppt.
Hvaða hraði er notaður fer eftir því hvað
verið er að vinna, gæðum þess og hvaða
árangri maður vill ná.
Venjulega á að byrja vinnslu með
nokkrum stuttum keyrslum í P-stöðu.
Ef varan þarf lengri vinnslu er valrofinn
settur í I-stöðu og ef árangurinn er
ófullnægjandi er skipt yfir í II-stöðu
(aðeins VCB-62).
HREINSUN.
VARÚÐ: Varið ykkur á beittum
og
hnífblöðunum (A6).
VARÚÐ: Áður en byrjað er að hreinsa á
að slökkva á vélinni með því að snúa
valrofanum (A11) í O-stöðu og taka vélina
úr
sambandi
eða
slökkva
á