Télécharger Imprimer la page

TASKA CX Manuel Utilisateur page 47

Publicité

91 I TASKA CX Hand User Guide
IS
Notkun handarinnar
• Treystið ekki einvörðungu á
TASKA Hand til að styðja við líkamann
eða til að koma í veg fyrir fall.
• Hámarksþyngd, sem bera má með
TASKA Hand eða annarri gervihönd
sem tengd er við TASKA Wrist, er
20 kg.
• Notið ekki TASKA Hand til að halda
á hlutum sem geta valdið skaða
ef þeir detta, eins og þungum eða
brothættum hlutum eða íláti með
hættulegu efni.
• TASKA Hand er ætluð til að aðstoða
þig við daglegar athafnir þínar. Hún
er ekki hönnuð fyrir athafnir sem fela
í sér mikinn titring, högg eða krafta
á hendina. Dæmi um óviðeigandi
notkun eru meðal annars en
takmarkast ekki við:
- notkun á höggverkfærum eins
og hömrum, högglyklum eða
borhömrum
- notkun á þungavinnuvélum eins og
keðjusögum og sverðsögum
- lemja hörð yfirborð viljandi með
hendinni
- lyftingar
- íþróttir undir mikilli ákefð,
jaðaríþróttir eða snertiíþróttir.
• Útsetjið TASKA Hand ekki fyrir
hættum sem myndu valda meiðslum
á náttúrulegri hönd, til dæmis:
- miklu höggi
- miklum titringi
- sprengingum
- ætandi íðefnum
- hættulegum vélbúnaði
- opnum eldi eða öðru nægilega heitu
til að brenna mannshúðina.
• Notið TASKA Hand af varúð til að
klípa ekki húðina, meiða ekki fólk eða
skemma ekki hluti.
• Notkun á gervihandlegg getur valdið
álagi á líkamann, óþægindum eða
ertingu á útlimsstúfnum. Ræðið
við meðferðaraðila ef TASKA Hand
veldur sársauka eða óþægindum.
• Áður en ökutæki er keyrt með TASKA
Hand verður að tryggja að lög heimili
akstur ökutækisins með gerviútlim.
Þú verður að fylgja lögum á staðnum
við notkun á ökutækjum, loftförum,
bátum eða öðrum vélknúnum
farartækjum með TASKA Hand.
Frekari upplýsingar má fá hjá
meðferðaraðila.
• Ef heimilað er að nota TASKA Hand
við akstur á ökutæki:
- notið opið, stöðugt grip svo það
lokist ekki óvart við aksturinn
- notið ekki TASKA Hand fyrir
öryggistengdan búnað eins
og hemla
- gangið úr skugga um að næg
rafhlöðuhleðsla sé til staðar til að
endast út ferðalagið.
• Notið TASKA Hand ekki þannig að
hún geti valdið hættu gegn öryggi.
• Notið TASKA Hand ekki til að munda
skotvopn.
• TASKA Hand má ekki komast í
snertingu við rafmagnsvír undir
spennu.
• Notið TASKA Hand ekki í nálægð við
eldfima vökva eða lofttegundir.
• Ef TASKA Hand er með þéttihring
verður að þrífa hann og yfirborð
þéttisins á hólkinum á úlnliðnum með
rökum klút til að fjarlægja óhreinindi
fyrir tengingu.
• Það verður að senda TASKA Hand
í árlegt viðhald til að viðhalda
ábyrgðinni. Það getur verið að þú fáir
reikning fyrir kostnaði sem fellur til ef
höndin fær ekki árlegt viðhald.
• Ef höndin hættir að virka ætti að prófa
að slökkva og kveikja aftur á henni.
• Hafið samband við meðferðaraðila ef
bilun hefur komið upp í höndinni.
• Ef í ljós kemur að smurefni eða aðrir
vökvar leka út úr TASKA Hand ætti
að hafa tafarlaust samband við
meðferðaraðila fyrir viðgerð og þrif.
• Reynið ekki að gera við eða breyta
TASKA Hand af sjálfsdáðum. Ef aðrir
en aðilar, sem TASKA Prosthetics
hefur heimilað, taka höndina í sundur,
umfram fjarlægingu á tilteknum
íhlutum, sem notandinn getur
skipt um, að þá fellur ábyrgðin á
TASKA Hand úr gildi.
• Ef TASKA Hand er biluð eða sýnir
ummerki um skemmdir ætti að hafa
samband við stoðtækjafræðing
til að fá upplýsingar um
viðgerðarmöguleika. Áframhaldandi
notkun handarinnar getur valdið
skemmdum á vatnsheldni
hennar. Athugið að skemmdir
á efnisþumlinum eða hlífunum
að framanverðu hafa ekki áhrif á
vatnsheldni handarinnar.
Efni
Ekki láta TASKA Hand þína verða fyrir
ætandi efnum eins og leysiefnum ,
sýrum , basa, sterkum þvottaefnum,
iðnaðar efni og hvers kyns efni sem eru
skaðleg húð manna.
TASKA CX Hand User Guide I 92
Þvo TASKA Hand þína
Hreinsaðu TASKA Hand þína reglulega
með því að aðeins nota vatn, mjúka
sápu eða létt sótthreinsiefni til að þvo
hendurnar. Sterk efni getur skemmt
höndina.
Alltaf skal þvo TASKA Hand þína eftir
að hafa notað hana í aðstæðum sem
gæti óhreinkað hana ( þ.m.t. saltvatn).
Hreinsaðu höndina áður en þú notar
hana til að borða , undirbúa mat , eða
meðhöndla meiðsli.
Umhverfisskilyrði
Notkunar- & og geymsluhiti:
-10°C til 45°C (14°F til 113°F)
Notkunar- & geymsluraki:
5 - 90% loftraki sem myndar
ekki dögg
Ef TASKA Hand er notuð við
önnur skilyrði getur það leitt til
ófyrirsjáanlegrar hegðunar.
• Þegar TASKA Hand er ekki í notkun
mælum við með að hún sé geymd í
þurru umhverfi í hlífðartöskunni sem
fylgir með henni.
Vatnsheldni
Allar TASKA Hand eru vatnsheldar
samkvæmt IP67 að úlnliðnum.
Ræðið um frekari vatnsheldni við
meðferðaraðila. TASKA Prosthetics
ber ekki ábyrgð á vatnsheldni
gerviútlimahólksins sem TASKA Hand
er fest við.
Hanskanotkun
Mælt er með því að nota hanska á
TASKA Hand við verk, sem ekki eru
hættuleg, og myndu venjulega krefjast
hanskanotkunar. Ef notaður er hanski,
sem ekki er frá TASKA, getur það skert
áhrif handarinnar.
Orkunotkun
Ráðlagt er að nota TASKA Hand með
IS

Publicité

loading