VIÐVÖRUN
VIÐVÖRUN! Grillið verður mjög heitt, færið það ekki við
•
notkun.
Notið ekki innandyra! Grillið er aðeins til notkunar utandyra.
•
Notið grillið á svæði með góðri loftræstingu.
•
VIÐVÖRUN! Notið ekki spritt eða bensín til að kveikja eða
•
viðhalda eldi! Notið aðeins grillkveikivökva sem uppfylla
EN1860-3!
VIÐVÖRUN! Haldið börnum og gæludýrum í burtu.
•
Setja skal grillið upp á traustu og jöfnu undirlagi fyrir notkun.
•
Notið ekki í minna en 1 m fjarlægð frá eldfimum mannvirkjum
•
eða yfirborði.
Öskukassinn verður að vera alveg settur í við notkun. Ef hann
•
er ekki settur í með réttum hætti getur það valdið því að heit
eldglóð detti niður af grillinu.
Brennsla á eldsneyti á föstu formi myndar lyktarlaust koleinoxíð
•
sem getur verið banvænt! Því skal aldrei nota grillið innandyra,
eða færa það inn ef ekki er búið að slökkva að fullu í því.
Þegar slökkt virðist hafa í kolaeldi geta óbrunnar eldglæður
•
geymt hita í allt að 24 klukkustundir og ef þær komast í
snertingu við ferskloft getur kviknað óvænt í þeim. Allar slíkar
eldglæður utan við eldhólf grillsins skapa hættu á eldsvoða og
geta kveikt í eldfimu yfirborði eins og viðarpöllum.
Ef leiðbeiningar eru ekki lesnar um kveikingu í viðarkolum eða
•
þeim ekki fylgt getur það leitt til alvarlegs líkams- og eða
eignatjóns.
Sýnið ávallt varúð við meðhöndlun á heitum kolum til að koma í
•
veg fyrir meiðsli.
Kveikið ávallt upp í grillinu með grilllokið opið.
•
VARÚÐ
Sumir hlutar kunna að vera með skarpar brúnir! Notið
•
hlífðarhanska ef þörf krefur.
Flest allt yfirborð grillsins er heitt við notkun. Sýnið ýtrustu
•
varúð. Snertið ekki málmhluti á grillinu fyrr en það hefur kólnað
alveg niður til að koma í veg fyrir brunasár, nema hlífðarhanskar
séu notaðir.
Handföng eldunargrindar eru heit við notkun. Hinkraðu þar til
•
grillið hefur kólnað áður en þú fjarlægir eldunargrindina eðan
notaðu ofnhanska til að fjarlægja eldunargrindina.
Ráð fyrir öryggi og umhirðu
Lesið leiðbeiningarnar áður en grillið er notað!
Ÿ
Fylgið öllum viðvörunum og leiðbeiningum við notkun grillsins. Ef
Ÿ
leiðbeiningarnar eru ekki lesnar eða ef þeim er ekki fylgt getur
það leitt til alvarlegs líkams- og/eða eignatjóns.
Geymið leiðbeiningarnar til að fletta upp í þeim síðar.
Ÿ
Ef spurningar vakna við lestur á leiðbeiningunum skal hafa
Ÿ
samband við söluaðila á viðkomandi stað.
Notið ekki grillið nema það sé fullsamsett og allir íhlutar þess hafi
Ÿ
verið festir og hertir.
Aðeins til heimilisnota. Notið ekki við eldamennsku í atvinnuskyni.
Ÿ
Leiðbeiningar fyrir notkun og uppkveikju
Grillið er hannað til að vera notað með viðarkolamolum eða
Ÿ
viðarkolastykkjum. Notið ekki meira en 1,0 kg af viðarkolum.
Setjið grillið upp á öruggum stað.
Ÿ
Hitið upp grillið og haldið eldsneytinu rauðglóandi í að minnsta
Ÿ
kosti 30 mínútur áður en eldamennska hefst.
Fyrir fyrstu eldamennsku á grillinu:
Ÿ
b. Kveikið lítinn eld í kolakassanum.
c. Lokið lokinu þegar logarnir sjatna, opnið loftop um ¼ úr
snúningi. Brennslan ætti að vara í að minnsta kosti 30 mínútur.
1.Raðið viðarkolum í þríhyrningslaga köst í miðju kolakassans.
2.Kveikið í viðarkolunum með hentugum eldkveiki sem uppfyllir
EN1860-3. Kveikið ávallt eld með grilllokið opið. Hafið lokið opið
á meðan það logar í viðarkolunum.
3.Setjið aldrei kveikilög á heit viðarkol því eldur kann að gjósa upp og
valda meiðslum.
4.Þegar viðarkolin hafa myndað öskulag og logarnir sjatnað (12-15
mínútur) skal jafna kolunum út í kolakassanum.
5.Setjið grillristarnar aftur á og lokið lokinu til að hita
eldunaryfirborðið.
6. Hefjið ekki eldamennsku fyrr en öskulag hefur myndast á kolunum.
Viðhald
MÁLIÐ ALDREI GRILLIÐ AÐ INNANVERÐU!
Tíðni þrifa fer eftir hversu oft grillið er notað.
Gangið úr skugga um að slökkt hafi verið að fullu í kolum áður en
grillið er þrifið að innanverðu. Skolið vandlega með vatni og látið
þorna að fullu áður en grillið er notað á ný. Þurrkið grilli að
innanverðu með klút eða pappírsþurrkum. Þegar eldamennsku lýkur
og grillið hefur kólnað niður í fullnægjandi hita skal hreinsa út alla
ösku. Aska safnar í sig raka sem getur valdið ótímabæru ryði og
skemmdum.
Ef stífur bursti er notaður til að þrífa eldunaryfirborð skal gæta þess
að engar leifar úr burstanum standi eftir á eldunaryfirborðinu áður en
grillað er. Ekki er ráðlagt að þrífa eldunaryfirborðið á heitu grilli.
15
IS