Tæknilegar Upplýsingar - 3M PELTOR SportTac MT16H210F Mode D'emploi

Masquer les pouces Voir aussi pour PELTOR SportTac MT16H210F:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 10
FP3584_reve_.indd 29
IS
• Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir með tímanum og þá þarf að
skoða með reglulegu millibili í leit að sprungum og öðrum göllum.
• Séu hreinlætishlífar settar á eyrnapúðana, getur það rýrt hljóðeinangrunarhæfni þeirra.
• Heyrnarhlífarnar eru búnar styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti að kynna sér rétta
notkun áður en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að
leita ráða um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu í handbók framleiðanda.
• Á heyrnarhlífunum er tengi fyrir hljóðtæki. Notandi ætti að kynna sér rétta notkun áður
en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita lausna í
handbók framleiðanda.
• Farðu að ráðum í handbókinni um viðhald og skipti á rafhlöðum.
• Afköst tækisins geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar. Gera má ráð fyrir
að rafhlaða í heyrnarhlífum endist í 600 klukkutíma við samfellda notkun.
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið fram yfir dagleg
hávaðamörk.
• Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
5. VIÐHALD
5:1 Að skipta um eyrnapúða
(C:1) Renndu fingri undir brún eyrnapúðans og kipptu honum beint út.
(C:2) Komdu fyrir nýjum frauð- og eyrnapúða.
(C:3) Þrýstu á þangað til hann smellur á sinn stað.
5:2 Hreinlæti
Fjarlægðu eyrnapúðana og hljóðdeyfipúðana (mynd C) ef þú hefur notað heyrnarhlífarnar
um langa hríð eða ef raki hefur safnast saman inni í skálunum. Hreinsaðu og sótthreinsaðu
skálarnar, höfuðspöng og eyrnapúða reglubundið með sápu og heitu vatni. Gættu þess að
tryggt sé að sápan geti ekki valdið notandanum skaða. Láttu hlífarnar þorna áður en þú notar
þær á ný. Ekki setja hlífarnar ofan í vatn!
5:3 Notkun og geymsla
Fjarlægðu rafhlöðurnar þegar tækið er sett í geymslu. Geymdu heyrnarhlífarnar ekki við meiri
hita en +55°C, (t.d. ofan á mælaborði í bíl, í hillu eða glugga) eða við lægri hita en -20°C.
Notaðu ekki tækið í meiri hita en +55°C eða lægri en -20°C.
5:4 WEEE-táknið (raf- og rafeindabúnaður til förgunar)
Neðangreind krafa gildir innan Evrópubandalagsins.
EKKI farga vörunni í óflokkuðu sorpi bæjarfélagsins!
Táknið sorptunna með krossi yfir þýðir að öllum EEE-búnaði (raf- og
rafeindabúnaði), rafhlöðum og rafgeymum, skuli fargað í samræmi við reglur
á hverjum stað með því að nýta sér móttöku- og afhendingarstöðvar þar.
6. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
6.1 Staðlar og vottanir
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að þessi 3M™ PELTOR™ SportTac Headset
heyrnartólin eru í samræmi við allar grundvallarkröfur og önnur ákvæði sem skilgreind eru í
viðeigandi tilskipunum. Þar af leiðandi uppfyllir varan kröfur um CE-merkingu. Hægt er að fá
send afrit af samræmisyfirlýsingu og viðbótarupplýsingum sem krafist er í tilskipununum með
því að hafa samband við 3M í því landi sem varan var keypt. Upplýsingar um tengiliði má
finna fremst í þessum notendaleiðbeiningum. Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi
við EN 352-1:2002/EN352-4:2001 / A1:2005, EN 352-6:2002.
Varan inniheldur bæði rafeinda- og rafmagnsbúnað og því má ekki farga henni með
venjulegu sorpi. Kynntu þér vinsamlegast reglur á hverjum stað um förgun rafeinda- og
rafmagnsbúnaðar.
Yfirlýsing vottunarstofnunar er gefin út af:
FIOH, Finnish Institute of Occupational Health, Topeliuksenkatu 41 b, FI-00250, Helsinki,
Finnland. Vottunarstofnun nr. 0403.
6:2 Útskýring á töflum yfir hljóðdeyfingu (tafla D)
1. Tíðni (Hz)
2. Meðalhljóðdeyfing (dB)
3. Staðalfrávik (dB)
4. Ætlað verndargildi, APV
5. Þyngd (g)
29
2017-04-04 09:38:02

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières