Zapf Creation BABY born 830550 Mode D'emploi page 31

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 13
Notið ekki snyrtivörur eða húðvörur á vöruna.
Skiljið ekki vöruna eftir í beinu sólarljósi í lengri tíma (hám. 1 klukkustund).
Skiljið ekki vöruna í háum hita (45°C eða hærri) í lengri tíma.
Festið lauslega skrúfurnar fjórar á rafhlöðuhólfinu og herðið þær svo hverja fyrir sig. Þetta kemur í veg
fyrir að halli myndist á hlíf rafhlöðuhólfs og tryggir að það sé þétt.
Allt um rafhlöður/hleðslurafhlöður
Notið alkaline rafhlöður til að tryggja betri gæði og lengri endingu.
Notið eingöngu rafhlöður sem mælt er með fyrir vöruna.
Látið fullorðna eingöngu sjá um að skipta um rafhlöður.
Gætið að rafhlöðurnar snúi rétt (+ og -).
Blandið ekki saman mismunandi tegundum af rafhlöðum.
Ekki nota endingarstuttar rafhlöður.
Ef tækið er ekki notað í nokkurn tíma, stillið takkann á "OFF" til að rafhlöðurnar lifi lengur. Við
mælum einnig með að rafhlöðurnar séu fjarlægðar til að koma í veg fyrir leka og eyðileggingu á
Ekki blanda saman hleðslurafhlöðum og venjulegum rafhlöðum.
Hlaðið ekki venjulegar rafhlöður.
Ónýtar rafhlöður þarf að fjarlægja úr leikfanginu og henda í sérstaka endurvinnslutunnu.
Haldið rafhlöðum frá eldi þar sem þau geta lekið eða sprungið.
Ef vatn kemst í rafhlöðuhólfið, þurrkið með klút.
Hleðslurafhlöður þarf að fjarlækja úr leikfanginu áður en þau eru hlaðin.
Hleðslurafhlöður þarf að hlaða undir eftirliti fullorðinna.
Gakktu úr skugga um að rafhlöðuhólfið sé þétt og örugglega lokað áður en þú leyfir börnunum þínum
að leika sér með leikfangið.
Upplýsingar um rafhlöður
Öryggi viðskiptavina er okkur mjög mikilvægt. Hafið í huga að þessi hlutur gengur fyrir rafhlöðum.
Kannið reglulega hvort hluturinn hafi orðið fyrir skemmdum og skiptið honum út ef nauðsyn krefur. Hafi
hluturinn skemmst skal geyma hann þar sem börn ná ekki til. Tryggið ævinlega að rafhlöður séu ekki
aðgengilegar og að ekki sé hægt að innbyrða þær á neinn hátt. Það getur gerst ef rafhlöðuhólfið er gallað
eða því ekki lokað með skrúfum. Skrúfið lok rafhlöðuhólfsins alltaf tryggilega á. Rafhlöður geta valdið
alvarlegum innvortis áverkum. Ef slíkt gerist skal leita læknis tafarlaust!
Geymið rafhlöður ævinlega þar sem börn ná ekki til.
VARÚÐ! Fargaðu notuðum batteríum strax. Láttu ný og notuð batterí ekki vera nálægt börnum. Ef þér grunar
að batteríin hafi verið gleypt eða komist á annan hátt inn í líkamann, leitaðu þá tafarlaust læknishjálpar.
Undirbúningur
Innsetning á rafhlöðum skal gerð af fullorðnum sem hér segir:
1. Stillið rofann á rafhlöðuhólfinu á "OFF". (Fig.1)
2. Notið skrúfjárn til að opna rafhlöðuhólfið. (Fig.2)
3. Setjið 4x 1.5V AA (LR6) rafhlöður. Vinsamlega athugið að rafstyrkurinn er réttur. (Fig.3)
4. Skrúfið lokið á rafhlöðuhólfið á aftur. (Fig.2)
5. Stillið rofann á rafhlöðuhólfinu á "ON". (Fig.1)
Upplýsingar um hreinsun og þurrkun:
Framkvæmist af fullorðnum aðila.
Hárið þvegið
Varan er með mjúkt og mjög vandað hár sem hægt er að þvo í volgu vatni (upp að 37 °C). Ef hárið er þvegið
með hefðbundnu mýkingarefni er auðveldara að greiða það og það kemur í veg fyrir að hárið detti af.
VIÐVÖRUN:
Hárið á vörunni er gert úr nælontrefjum og má því ekki komast í snertingu við hita, t.d. heitt vatn, heitt loft úr
hárþurrku eða krullujárn. Litið ekki hárið á vörunni. Notið ekki hárlakk, hársprey, froðu eða gel.
Til að þvo hárið skal láta vöruna standa upprétta og láta vatn renna yfir hana ofan frá (ekki þvo hana á
hvolfi!). Ekki nudda hárið því það losar festinguna í skiptingunni og hárið verður ekki lengur jafnt á höfðinu.
Hafið þetta einnig í huga þegar hárið er þurrkað. Besta leiðin til að fjarlægja vatn er með því að kreista hárið
varlega ofan frá og niður og leyfa því síðan að þorna. Kynnið ykkur hlutann „Hárið þurrkað".
31

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Baby born 830953

Table des Matières