Télécharger Imprimer la page

Etac R82 Heron Mode D'emploi page 205

Publicité

Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi við tæki í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð
tækisins að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notenda
og/eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki sinna þjónustu og viðhaldi
á meðan varan er í notkun. Ef þörf krefum skal hafa samband við söluaðila á staðnum til að fá aðstoð
við uppsetningu, notkun eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi við tækið.
Endingartími
Endingartími vörunnar við venjulega notkun
er 8 ár ef öllu viðhaldi og þjónustu er sinnt
samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og
skráð svo hægt sé að sýna fram á það.
Endurnotkun
Þessi vara og aukahlutir/íhlutir hennar henta
til endurnotkunar.
Endurbætur fyrir endurnotkun
Áður en varan er notuð aftur eða skipt um
notanda skal fylgja viðhaldsgátlistanum og
hreinsunarleiðbeiningum, ásamt því að skoða
hana reglulega.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana getur breyst eftir notkun og sliti.
Mælt er með því að varan sé skoðuð árlega,
í hvert sinn sem varan er endurútgefin til
notkunar og eftir langtímageymslu (meira en
4 mánuði). Aðili sem hefur skilning á notkun
vörunnar skal sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Yfirfarið og stillið eftirfarandi í samræmi við
fyrirhugaða notkun:
• Sessur
• Vörur sem búnar eru vökvadælu fyrir
hæðarstillingu. Hægt er að stilla hæð
undirvagnsins upp og niður
• Rafknúnar útgáfur geta haldið rafmagni
eftir hleðslu rafhlöðunnar
• Fyrir rafknúnar útgáfur skal endurstilla
afleiningakerfið með því að ýta samtímis
á upp (f) og niður (g) takkana
á fjarstýringunni í 5 sekúndur
• Vörur með rafknúna hæðarstillingu.
Snúrurnar eru í góðu ásigkomulagi og
fjarstýrðir eiginleikar fyrir hæðarstillingu
virka eins og til er ætlast
• Herðið rær og bolta á vörunni
• Berið olíu á framlengingarhluti
• Leitið eftir sliti á tengjum og sylgjum
• Leitið eftir merkjum um sprungur
eða slitna íhluti
• Allar merkingar á vörunni eru heilar
Gerið við eða skiptið um skemmda eða slitna
hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
Þurrka leifar og óhreinindi af vörunni með klút
XX IS
með volgu vatni og mildu hreinsiefni/sápu án
klórs og láta stólinn síðan þorna fyrir notkun.
Gerið sjónræna skoðun á því hvort einhverjir
hlutir séu skemmdir eða slitnir.
Þvottur
Aðalvara
Vöruna má þvo á 60° hita með mildu
þvottaefni í 10 mínútur í þvottavél sem
er hönnuð fyrir lækningatæki. Notið
þurrkunaraðgerð vélarinnar til að þurrka
vöruna. Fjarlægið allan aukabúnað og þvoið
hann sérstaklega.
Hægt er að þvo þessa vöru við 85° með
mildu þvottaefni í 3 mínútur í þvottavél
sem er hönnuð fyrir lækningatæki. Notið
þurrkunaraðgerð vélarinnar til að þurrka
vöruna. Fjarlægið allan aukabúnað og þvoið
hann sérstaklega.
Fyrir þvott
Forðist að fjarlægja smurefni af
stimpilstöngum, dragið hreyfiliði til baka í
lágmarksslaglengd áður þeir eru þvegnir.
• Fjarlægið allan aukabúnað, takið alla
kapla úr sambandi og gætið þess að
fjarlægja rafhlöðuna, stjórnstöðina og
fjarstýringuna. Skiljið hreyfiliðana eftir með
snúrurnar festar við vöruna (sjá bls. 22)
• EKKI þrífa afleininguna með háþrýstidælu
eða gufuhreinsi
Eftir þvott
• Gangið úr skugga um að snúrurnar
séu rétt tengdar við stjórnstöðina þegar
afleiningarkerfið er sett saman aftur
(sjá bls. 23)
• Gangið úr skugga um að fjarstýringin
virki sem skyldi
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo þessa vöru og fylgihluti
hennar í höndunum. Notið volgt vatn og milt
hreinsiefni/ sápu án klórs og leyfið öllum
hlutum að þorna fyrir notkun.
Sótthreinsun
Vöruna má sótthreinsa með 70%
sótthreinsispritti. Mælt er með því að nota
klút með volgu vatni og mildu hreinsiefni/
sápu án klórs til að þurrka leifar og óhreinindi
af vörunni og leyfa henni síðan að þorna fyrir
sótthreinsun.
205
etac.com

Publicité

loading