Upplýsingar um SAR-gildi
FARTÆKIÐ ÞITT UPPFYLLIR ALÞJÓÐLEGAR VIÐMIÐUNARREGLUR UM ÚTSETNINGU
FYRIR ÚTVARPSBYLGJUM.
Fartækið er sendi- og móttökutæki fyrir þráðlaus fjarskipti. Það er hannað til þess að
fara ekki yfir mörk útsetningar fyrir útvarpsbylgjum (útvarpstíðni og rafsegulsviði) sem
alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Viðmiðunarreglurnar voru samdar af óháðum
vísindasamtökum (ICNIRP) og mæla þær fyrir um rífleg öryggismörk sem eiga að tryggja
öryggi allra, án tillits til aldurs eða heilsu.
Í reglum um útsetningu fyrir útvarpsbylgjum er notuð mælieiningin SAR (Specific
Absorption Rate). Hámarksgildi SAR fyrir fartæki er 2 W/kg. Prófanir á SAR-gildum eru
gerðar með stöðluðum notkunarstaðsetningum þar sem tækið er látið senda út á hæsta
vottaða aflsstigi á öllum tíðnisviðum. Hér að neðan má sjá hæsta SAR-gildi þíns tækis
samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP:
Hámarksgildi SAR fyrir þessa gerð og aðstæður við skráningu þess.
Evrópa, 10 g
SAR-hámark
(2,0 W/kg)
Raunveruleg SAR-gildi við notkun þíns tækis eru yfirleitt mun lægri en uppgefin gildi.
Það er vegna þess afl tækisins minnkar sjálfkrafa þegar ekki þarf að nota fullt afl vegna
gagnatengingar, til þess að auka skilvirkni kerfisins og lágmarka truflun á símakerfi.
SAR-gildið er lægra þegar tækið notar minna afl.
Ef þú vilt draga enn frekar úr áhrifum útvarpsbylgja geturðu einfaldlega takmarkað notkun
eða notað handfrjálsan búnað til að halda tækinu frá líkamanum.
Lenovo TB-8304F
Lenovo TB-8304F1
Á líkama
WLAN, Bluetooth 0,903 W/kg
Á líkama
WLAN, Bluetooth 0,347 W/kg
158