Télécharger Imprimer la page

Lenovo TAB 8 Guide Rapide page 153

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 27
Mikilvægar upplýsingar varðandi öryggi og
meðhöndlun
Viðvörun vegna plastpoka
Hætta: Plastpokar geta verið hættulegir. Haltu plastpokum fjarri smábörnum og yngri
börnum til að komast hjá hættu á köfnun.
Athugasemd vegna innbyggðrar hleðslurafhlöðu
Hætta: Ekki reyna að skipta um innbyggðu litíum-ion hleðslurafhlöðuna. Hætta er á
sprengingu ef sett er í ný rafhlaða af rangri tegund. Hafið samband við hjálparmiðstöð
Lenovo til að fá varahluti frá verksmiðju. Fargið notuðum rafhlöðum í samræmi við
leiðbeiningar.
Viðvörun vegna mikils hljóðstyrks
Viðvörun: Að vera í miklum hávaða í lengri tíma, frá hvaða hljóðgjafa sem er, kann að
skaða heyrnina. Því hærra sem hljóðið er, þeim mun skemmri tími líður þar til það fer að
skaða heyrnina. Til að vernda heyrn þína:
• Stilltu í hóf þeim tíma sem þú notar höfuðtól eða heyrnartól við háan hljóðstyrk.
• Forðastu að hækka hljóðstyrkinn til að loka á hávaða úr umhverfinu.
• Ef þú heyrir ekki hvað fólkið næst þér segir ættirðu að minnka hljóðstyrkinn.
Ef þú finnur fyrir óþægindum í eyrunum, þar með talið þrýstingi, stíflu í eyrunum eða suði,
eða átt erfitt með að heyra tal, ættir þú að hætta að hlusta á tækið gegnum heyrnartólin
og láta mæla heyrnina.
Til að koma í veg fyrir hugsanlegan heyrnarskaða skal ekki hlusta með háum hljóðstyrk í
lengri tíma.
Öryggisleiðbeiningar fyrir foreldra og fullorðna umsjónarmenn
Fartækið er ekki leikfang. Ekki er mælt með því að börn undir 3 ára aldri leiki sér með
tækið. Eins og gildir um öll rafmagnstæki skal sýna aðgát þegar rafmagnstækið er
notað og meðhöndlað til að draga úr hættu á raflosti. Ef foreldrar leyfa börnum sem eru
3 ára eða eldri að nota tækið skal vara barnið við mögulegri hættu sem fylgir notkun
og meðhöndlun fartækisins. Foreldrar ættu að athuga reglulega hvort skemmdir séu á
fartækinu (þar á meðal hleðslutæki og smáum hlutum þess, eins og á við). Skoða skal
fartækið reglulega til að ganga úr skugga um að það virki sem skyldi og öruggt sé fyrir
börn að nota það.
151

Publicité

loading

Ce manuel est également adapté pour:

Tb-8304fTb-8304f1