IS
Öryggi
Almennar öryggisupplýsingar
• Lesið notkunarleiðbeiningarnar vandlega áður en verkfærið er tekið í notkun og fylgið í
hvívetna ábendingunum sem þar er að finna.
• Geymið notkunarleiðbeiningarnar á sama stað og verkfærið.
• Farið eftir gildandi öryggisreglum í hverju landi.
• Lekastraumsrofi skal vera til staðar í rafkerfi.
• Börn átta ára og eldri og einstaklingar sem eru líkamlega eða andlega fatlaðir eða sem
skortir reynslu og þekkingu mega nota búnaðinn að því gefnu að fylgst sé með þeim eða
að viðkomandi hafi fengið tilsögn í öruggri notkun búnaðarins og sé kunnugt um þær
hættur sem af honum geta stafað. Börn mega ekki leika sér með búnaðinn. Börn mega
ekki sjá um þrif og notendaviðhald án eftirlits (samkvæmt EN 60335-1).
Öryggi á vinnustað
• Þar sem suðuspegillinn er notaður verður loftræsting að vera góð.
• Suðuspegilinn má eingöngu nota í skjóli fyrir veðri og vindum.
• Notið suðuspegilinn ekki nálægt eldfimum vökva eða sprengifimum gas- eða
rykblöndum.
• Þegar hlé er gert á vinnu skal koma suðuspeglinum fyrir í þar til ætluðum standi.
• Ekki má geyma eldfim efni í innan við 1 m fjarlægð frá suðuspeglinum.
• Haldið vinnusvæðinu hreinu og snyrtilegu.
• Lýsing á vinnusvæði skal vera nægileg.
• Haldið börnum og óviðkomandi aðilum frá vinnusvæðinu á meðan suðuspegillinn er
notaður.
• Forðast skal að láta hluti hanga lausa á vinnusvæðinu.
Öryggisráðstafanir vegna rafmagns
• Áður en suðuspegillinn er notaður skal alltaf athuga hvort tækið, rafmagnssnúran og
klóin eru skemmd eða í ólagi.
• Snertið ekki skemmdar rafmagnssnúrur eða klær og látið viðurkenndan rafvirkja skipta
um þær tafarlaust.
• Ekki má sjóða saman lagnir sem eru rakar eða fullar af vatni.
• Verjið verkfærið gegn bleytu og raka.
• Þegar átt er við suðuspegilinn í öðrum tilgangi en að sjóða skal ávallt taka hann úr
sambandi við rafmagn.
• Gætið þess að rafmagnssnúran snerti ekki heitan suðuspegilinn.
• Látið yfirfara rafbúnað samkvæmt gildandi reglum í hverju landi.
70
5866419979-1 © 12-2018
997.771.00.0 (10)