Viðvörun vegna innbyggðrar hleðslurafhlöðu
Hætta: Ekki skal reyna að skipta um innbyggðu litíumjónahleðslurafhlöðuna. Ef þú
skiptir upprunalegu rafhlöðunni út fyrir ósamrýmanlega rafhlöðu getur það leitt til
aukinnar hættu á meiðslum eða skemmdum á eignum vegna sprengingar, mikils
hita eða annarrar áhættu. Ekki reyna að taka í sundur eða breyta rafhlöðupakkanum.
Tilraun til að gera það getur valdið skaðlegri sprengingu eða leka á rafhlöðuefnum.
Fylgja skal öllum staðbundnum reglum eða reglugerðum þegar rafhlöðu er
fargað. Ekki skal fleygja rafhlöðupakkanum með heimilissorpi. Farga skal notuðum
rafhlöðum í samræmi við leiðbeiningarnar.
Rafhlöðupakkinn inniheldur lítið magn af skaðlegum efnum.
Til að forðast slys:
• Halda skal rafhlöðupakkanum frá opnum eldi og öðrum hitagjöfum.
• Rafhlöðupakkinn má ekki komast í snertingu við vatn, rigningu eða ætandi vökva.
• Ekki skal geyma rafhlöðuna á stað þar sem er mjög heitt.
• Forðast skal skammhlaup í rafhlöðupakkanum.
• Geyma skal rafhlöðupakkann þar sem hvorki börn né gæludýr ná til.
• Ekki skal geyma rafhlöðuna á stað með mjög litlum loftþrýstingi. Það getur leitt til
sprengingar eða leka eldfims vökva eða lofttegunda frá rafhlöðunni.
Til að lengja endingu rafhlöðunnar mælum við með því að rafhlaðan sé hlaðin í að
minnsta kosti 30% til 50% af afkastagetu í hvert skipti og hún svo endurhlaðin á
þriggja mánaða fresti til að koma í veg fyrir að hún afhlaðist.
Upplýsingar um augnvernd og öryggi
Lenovo leggur áherslu á afköst skjáa sinna en er sömuleiðis annt um að vernda augu
notenda. Þessi vara hefur fengið vottunina „Low Blue Light" (lítil blá birta) frá TÜV
Rheinland og þess vegna má nota hana áhyggjulaust. Frekari upplýsingar eru á
https://support.lenovo.com.
Merki fyrir samhæfi í Evrasíu
180