NOTKUN Á BLANDARANUM
Þrífðu alla hluta og fylgihluti fyrir fyrstu notkun (sjá kaflann „Umhirða og hreinsun"). Áður en
blandarinn er notaður skaltu gæta þess að eldhúsborðið undir blandaranum og svæðið
umhverfis sé þurrt og hreint.
MIKILVÆGT: Þegar blandarinn er færður til skal alltaf styðja við/lyfta aðaleiningunni.
Aðaleiningin losnar frá könnunni ef haldið er á blandaranum aðeins með könnunni eða
könnuhandfanginu.
Settu hráefnin í blandarakönnuna EÐA glerkönnuna (hám. 1,4 L).
1.
Festu lokið og miðjutappann í lokinu vandlega.
Settu blandarakönnuna á aðaleininguna með því að láta raufina passa í plássið fyrir
2.
könnuna, svo að handfangið snúi í átt að stjórnskífunni.
Settu blandarann í samband við jarðtengda innstungu.
Snúðu stjórnskífunni frá (O) að æskilegri hraðastillingu fyrir stöðuga virkni.
3.
Þegar blöndun er lokið skal slökkva á blandaranum með því að snúa stjórnskífunni á (O).
4.
Taktu blandarann úr sambandi áður en þú fjarlægir blandarakönnuna.
MIKILVÆGT: Láttu blandarann stöðvast alveg áður en þú fjarlægir lokið eða könnuna eða
hellir blandaða hráefninu úr.
NOTKUN Á PÚLS/KLAKAMULNINGSAÐGERÐ
Blandarinn þinn býður upp á „Púls/klakamulnings( )" aðgerð með rólegri byrjun svo hráefnið
skvettist ekki út. Við þessa aðgerð mun blandarinn blanda á hentugasta hraðanum til að mylja
klaka. Þessi aðgerð heldur áfram þar til þú sleppir stjórnskífunni og hún fer aftur á (O).
Settu hráefnin eða klakana í blandarakönnuna.
1.
Festu lokið með miðjutappanum vandlega á blandarakönnuna.
Snúðu og haltu stjórnskífunni frá (O) til ( ) í þann tíma sem óskað er eftir. Þegar blöndun
2.
er lokið skal sleppa stjórnskífunni til að stöðva blandarann.
:Fjarlægðu miðjutappann í lokinu eingöngu. Hrærðu eða þrýstu innihaldinu niður í
3.
Þjappa
*
átt að hnífnum. Settu síðan tappann aftur á lokið áður en þú heldur áfram að blanda.
RÁÐ: Notaðu helminginn af venjulegu ísmolaboxi eða 7-8 ísmola í einu fyrir hverja blöndun.
Púls/klakamulnings ( ) aðgerðin hefur verið fínstillt til að mylja og skera sundur klaka án þess
að þurfi að bæta við vökva.
UMHIRÐA OG HREINSUN
MIKILVÆGT: Látið tækið kólna alveg áður en hlutir eru settir á eða teknir af og áður en tækið
er þrifið.
Tæmdu könnuna. Fylltu könnuna til hálfs með volgu vatni og bættu við 1 eða 2 dropum af
1.
uppþvottalegi. Settu könnuna á aðaleiningu blandarans. Festu lokið og miðjutappann í
lokinu vandlega.
Hafðu blandarann á hraðastillingu 3 í 15-20 sekúndur. Taktu könnuna af, tæmdu hana og
2.
skolaðu með volgu vatni og þurrkaðu vandlega.
ATHUGIÐ: Til að forðast að skemma blandarann skal ekki setja aðaleiningu blandarans
eða snúru í vatn. Ekki nota hreinsiefni eða svampa sem geta rispað, til að forðast að rispa
blandarann.
Taktu blandarann úr sambandi fyrir þrif. Þurrkaðu af aðaleiningunni, rafmagnssnúrunni og
3.
gírunum fyrir sítruspressuna með volgum, rökum klút og þurrkaðu síðan með mjúkum klút.
*Fæst sem valkvæður fylgihlutur.
99