176
Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Twist B i-Size
!
Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR
en þú festir stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni
þínu í hættu.
! Mikilvægar upplýsingar
• Það er EKKI LEYFILEGT að setja stólinn í framsæti MEÐ
VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
• Þennan bílstól er bara hægt að nota í bíl sem er með ISOfix
festingar, í samræmi við UN/ECE reglugerð nr. 14 eða aðra jafngilda
staðla.
• Lesið handbók bílsins til að vita hvar stóllinn á að vera í bílnum.
• Lesið bílalistann til að sjá hvort þín bílategund sé vottuð fyrir
þetta sæti. Hægt er að fá nýjustu útgáfu af bílalistanum á BeSafe
vefsíðunni www.besafe.com. Ef bíllinn þinn er ekki á bílalistanum
skaltu hafa samband við BeSafe til að fá nánari upplýsingar.
• iZi Twist B i-Size skal nota bakvísandi fyrir börn frá 40 til 105 cm
hæð að hámarksþyngd 18 kg.
• Barnainnleggið er viðurkennt fyrir börn í bakvísandi stöðu sem eru
40 til 87 cm á hæð.
• Þegar ekið er með barn sitjandi í stólnum verður stólinn ávallt
að vera (bakvísandi) frá akstursstefnu bílsins. Aldrei má aka með
stólnum snúið til hliðar þegar barn situr í stólnum. Mælt er með því
að aka ekki með stólnum snúið til hliðar þegar hann er tómur.
• Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
• Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta þess
að þau séu ekki snúin.
• Axlarpúðarnir eru með seglum sem geta haft áhrif á rafeindabúnað
eins og gangráð.
• Verjið barnið fyrir sól.
• Ávallt verður að nota gólfstuðninginn. Gakktu úr skugga um að
gólfstuðningurinn sé niðri að fullu þar til hann snertir bílgólfið fyrir
framan stólinn og að bílstóllinn sé láréttur í bílnum með hallamálið í
miðjunni. Vísarnir fyrir gólfstuðninginn ættu alltaf að vera grænir.
• Við mælum með því að nota barnainnleggið eingöngu í mest hallandi
stöðu þar til barnið hefur náð 87 cm hæð.
• Fjarlægið barnapúðann þegar barnið er stærra en 60 cm eða eldra
en 4 mánaða.
• Taktu barnainnleggið úr þegar barnið er orðið hærra en 87 cm.
• Eftir bílsslys verður að skipta um stól þó svo að hann virðist
óskemmdur því við annað slys er ekki víst að stóllinn verndi barn þitt
eins og hann á að gera.
• Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á
hann eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
• Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur
hægt að mynda brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal
ganga úr skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu.
• EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við
hann. Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru notaðir
eða einhver aukabúnaður.
• Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
• Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr
stólnum í neyðartilfellum.
• Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað
bæði börn og fullorðna illa.
• Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins
endurnýja með upprunalegu BeSafe áklæði.
• Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
• BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir né
seldir.
• GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
• EKKI nota stólinn lengur en 7 ár því efnið í honum breytist með
aldrinum.
• EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks
heldur aðeins til nota í bíl.
• Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum
þar sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að
(BeSafe) hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg
fyrir skemmdir af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og
viðarklædda fleti.
• Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla hjá
VÍS.
177