7. Viðhald / Þjónusta
Viðhalds - og þjónustuvinna gerð á tröppunni er ætlað að gæta þess að trappan virki almennilega. Athuga
þarf tröppuna reglulega gagnvart skemmdum. Gætið þess að allir hreyfanlegir hlutir tröppunnar virki
almennilega. Hreyfanlega hluti þarf að smyrja reglulega. Allar viðgerðir á tröppunni þurfa að vera framk-
væmdar af fagaðila og í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda. Hreinsið ávallt tröppuna og þá sérstak-
lega hreyfanlegu hluti hennar eftir notkun ef óhreinindi komast á hana. Notið hefðbundin vatnsleysanleg
hreinsiefni. Notið ekki ágeng efni eða svarfefni. Ef trappan er notuð af fagaðilum, þarf að grannskoða
hana reglulega af viðurkenndum aðila til að gæta þess að hún sé í góðu ástandi (sjónrænt og með fram-
mistöðuprófi). Ef sú er raunin, er nauðsynlegt að búa til eftirlitsáætlun sem inniheldur tegund, umfang og
millibil þess sem eftirlitið er gert. Bil eftirlits þarf að vera ákveðið í samræmi við viðeigandi vinnuskilyrði,
sérstaklega ef trappan er mikið notuð, hleðslu sem sett er á tröppuna og tíðni og alvarleiki þeirra galla
sem fundist hafa í fyrra eftirliti. Eigandi er einnig ábyrgur gagnvart því að taka gallaðar tröppur úr notkun
á þann hátt að ekki sé hægt að nota þær fyrr en gert hefur verið við þær eða þær fjarlægðar varanlega.
Aukahlutir tröppu:
1. Almennir
eftirlitsstaðir
2. Hliðarslá/rimar
eða þrep/öryg-
gisslá
3. Samsetningarhlu-
tir, festingar
4. Fætur, jafnvægis-
búnaður
5. Stuðningsbúnaður Athugið ástand bindiborða, keðja, samskeyta og styrkinga. Eru allir
6. Merki á tröppu/
Notendahandbók
NIÐURSTÖÐUR
8. Geymsla
Festið og bindið niður tröppuna á öruggan hátt þegar þið flytjið hana (t.d. á þakfestingar eða í bílum)
til að forðast skemmdir. Tröppuna á að geyma í þurru umhverfi annaðhvort uppistandandi, flata á
jörðinni eða hengda á vegg með viðeigandi veggfestingum. Hana þarf að geyma á þann hátt svo hún
skemmist ekki og alla hluta tröppunnar þarf að verja frá veðri. Tröppuna þarf að geyma svo hún sé
varin gagnvart börnum og svo að hún valdi ekki hættu (t.d. fallhættu). Ennfremur þarf að geyma hana
á þann hátt að ekki sé hægt að nota hana / fjarlægja við ólögmæt athæfi.
9. Umbúðir / förgun
Farga þarf umbúðum í samræmi við viðeigandi reglugerðir og lög. Þegar endingartíma tröppunnar er
lokið þarf að farga henni í samræmi við viðeigandi reglugerðir og lög. Ál er hágæða málmur og ætti að
endurnýta. Vinsamlegast athugið frekari upplýsingar um endurvinnslu hjá staðbundnum yfirvöldum.
10. Líftími
Þessi trappa er hágæðavara og hönnuð tilo að hún endist lengi ef hún er notuð á viðeigandi hátt og er
haldið vel við.
11. Framleiðandi
KRAUSE-Werk GmbH & Co. KG • Am Kreuzweg 3 • D-36304 Alsfeld • Tel.: +49 (0) 66 31 / 7 95-0
• Fax: +49 (0) 66 31 / 7 95-139 • E-Mail: info@krause-systems.de • www.krause-systems.com.
Útgáfudagur: 01.06.2020.
Eftirlitsstaðir:
Allar festingar (hnoðnaglar, skrúfur, boltar o.s.frv.) verða að vera á
sínum stað. Eru einhverjar festingar lausar eða tærðar? Eru einhver
óhreinindi (t.d. mold, leðja, málning, olía eða fita) á tröppunni?
Ekki má vanta rimar/tröppur. Eru hliðarslár eða handrið beygð, undin,
beygluð, með sprungum eða tærð? Eru rimarnar eða þrepin slitin,
laus, tærð eða skemmd? Er pallurinn (ef til staðar) eða hlutar hans/
festingar skemmd, tærð, eða vantar?
Athugið að stýringar, læsibúnaður og öryggisbúnaður virki rétt, séu
þétt og ekki tærð eða skemmd. Eru stýringar, læsibúnaður og öryggis-
búnaður, skemmd, laus eða tærð, eða ekki til staðar?
Athugið hvort fætur og jafnvægisbúnaður virki rétt, séu þétt og ekki
tærð eða skemmd. Allar fóthettur verða að vera á sínum stað. Eru
fætur tröppunnar lausir, slitnir eða tærðir?
stuðningsstaðir í góðu ástandi? Eru einhverjar skemmdir, sprungur
eða tæringar?
Eru allar merkingar á tröppu og notendahandbók á sínum stað og
læsileg?
Trappan er í góðu ásigkomulagi og hæf til notkunar.
Tröppuna má eingöngu nota eftir viðgerð.
Trappan er ónýt og henni þarf að farga.
Já/nei