8.
9.
10.
11.
KG
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
Ekki mega fleiri en ein persóna nota tröppuna í einu.
Farið ávallt upp og niður tröppuna með andlitið að honum.
Gætið þess að hafa örugga handfestu meðan þið klifrið og vinnið á tröp-
punni. Gerið frekari varúðarráðstafanir ef nauðsynlegt þykir.
Setjið ekki auka álag á hliðar tröppunnar eins og t.d. þegar verið er að
bora í veggi og steypu.
Allir hlutir sem bornir eru upp og niður tröppuna verða að vera léttir og
auðveldir viðfangs.
Verið ávallt í viðeigandi fótbúnaði á meðan þið klifrið
Notið ekki tröppuna ef líkamlegt ástand er vafasamt eða óhæft. Ákveðin
heilsuvandamál, lyfjanotkun, notkun alkóhóls og eiturlyfja getur skapað öryg-
gishættu við notkun tröppunnar.
Notið ekki tröppuna í of langan tíma án þess að taka reglulega hvíld
(þreyta getur skapað hættu).
Festið tröppuna örugglega meðan á flutningi stendur á þakfestingar eða
inni í bílum til að forðast slysahættu.
Gætið þess að trappan sé viðeigandi fyrir verkefnið og sé án skemmda.
Hreinsið og gætið þess að trappan sé laus við t.d. blauta málningu
óhreinindi, olíu eða snjó áður en hún er notuð.
Notið ekki tröppuna utandyra við slæm veðurskilyrði
(t.d öflugum vind, frosti, ísingu og snjó).
Þegar trappan er notuð í atvinnuskyni skal alltaf meta hættuna og taka
tillit til lagareglna í landi notkunar.
Varist árekstur við t.d. vegfarendur, ökutæki eða hurðir við uppstillingu
tröppunnar. Læsið hurðum (að undanskildum öryggishurðum) og gluggum
nálægt tröppunni.
Takið eftir öllum hættum sem rafmagnsbúnaður skapar, t.d. spennulínur
fyrir ofan eða annar sýnilegur rafbúnaður á vinnusvæðinu.
Notið ekki tröppur sem geta verið rafleiðandi vegna vinnu á tengdum bú-
naði eða nálægt spennulínum (t.d. áltröppur).