ÍSLENSKA
NOTKUN Á ÞRÁÐLAUSUM MAGNARA
TRÅDFRI magnari gerir þér kleift að auka
drægi IKEA ljósastýringavara.
Pörun: Bættu IKEA ljósastýringavöru
við kerfið. Sjá leiðbeiningar að neðan.
STÝRISBÚNAÐI BÆTT VIÐ
MAGNARANN
Þegar magnari er seldur með IKEA
ljósastýringavöru (í sömu pakkningu) eru
þau þegar pöruð saman.
Þú getur ekki bætt IKEA ljósastýringavöru
beint við magnarann. Til þess þarftu
TRÅDFRI stýrisbúnað.
Fylgdu eftirfarandi þrepum til að bæta við
stýrisbúnaði:
Gættu þess að magnarinn sé í sambandi og
að það sé kveikt á honum.
1. Hafðu stýrisbúnaðinn nálægt
magnaranum sem þú vilt bæta við (ekki í
meira en 5 cm fjarlægð).
2. Ýttu og haltu niðri pörunarhnappinum í
a.m.k. 10 sekúndur. Pörunarhnappurinn
er undir lokinu að aftan.
3. Rautt ljós lýsir stöðugt á
stýrisbúnaðinum.
Farðu að vörunni sem þú vilt stýra og
endurtaktu pörunina.
Hvítt ljós dofnar á IKEA
ljósastýringavörunni og blikkar einu sinni
til að gefa til kynna að hún sé pöruð við
magnarann.
BÚNAÐUR ENDURSTILLTUR Á
GRUNNSTILLINGU
Þráðlaus magnari:
Þrýstu prjóni í gatið undir magnaranum í
a.m.k. 5 sekúndur.
Þegar búið er að endurstilla magnarann
skaltu para stýrisbúnaðinn við magnarann
og para síðan stýrisbúnaðinn aftur við
ljósastýringavöruna.
MIKILVÆGT!
— Magnarinn er aðeins ætlaður til notkunar
innandyra og má nota við 0°C til 14°C.
— Ekki skilja magnarann eftir í beinu
sólarljósi eða nálægt hitagjafa þar sem
hann gæti ofhitnað.
— Drægi á milli þráðlausa magnarans
og móttökutækis er mælt fyrir opið
svæði. Mismunandi byggingarefni og
staðsetning búnaðarins getur haft áhrif
á drægi.
VARÚÐ!
— Innstungan þarf að vera nálægt
búnaðinum og aðgengileg.
— Notið aðeins á þurrum stað.
— Hafðu eftirlit með börnum til að tryggja
að þau leiki sér ekki með vöruna.
— Fargaðu búnaðinum ef hann verður fyrir
skemmdum.
— Aldrei nota skemmda eða gallaða USB-
snúru til að hlaða, það getur valdið
skaða á búnaðinum og tækinu þínu.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: E1746 þráðlaus magnari
Inntak: 5V DC
Langdrægi: 10 m á opnu svæði
Aðeins fyrir notkun innandyra
Rekstrartíðni: 2405-2480 MHz
Aflsafköst: 3 dBm
14