ÍSLENSKA
Hleðslueiginleikar
— Hleður Qi-samrýmanleg tæki þráðlaust.
— Stenst Qi v1,2 forskrift.
— Hleður 1 tæki í gegnum USB tengið.
— Vaktar hitastig og orku í öryggisskyni.
— LED stöðuvísir.
Eiginleikar
— Tengdu hleðslusnúruna við straumbreytinn
og settu í samband við vegginnstungu.
— Fyrir þráðlausa hleðslu er tækið lagt ofan
á plúsmerkið (+) á hleðslutækinu. Tækið
verður að liggja beint ofan á plúsmerkinu
(+) á hleðslutækinu til að hleðslan haldist
virk. Athugaðu að á sumum tækjum
gæti þurft að virkja þráðlausa hleðslu í
stillingum.
— Ef rafhlaðan er alveg tóm, gæti tekið
nokkar mínútur fyrir hleðslu að hefjast. Það
er eðlilegt. Þegar rafhlöðutáknið birtist á
símanum, hefur hleðsla hafist.
— Ef þú vilt hlaða með USB, tengdu USB-
snúruna við USB-tengið. (Sjá mynd 1).
LED vísir (sjá myndir):
2. Kveikt: LED ljósið logar í 3 sekúndur.
3. Hleður: LED ljósið logar.
4. Hleðslu lokið: LED ljósið er slökkt.
5. Villa: LED ljósið blikkar.
Gott að vita
— Tæki gætu hitnað á meðan hleðslu stendur.
Þetta er eðlilegt og þau kólna aftur smám
saman þegar þau hafa náð fullri hleðslu.
— Hleðslutími getur verið breytilegur miðað
við rúmtak rafhlöðunnar, stig hleðslu, aldur
rafhlöðunnar og hitastig umhverfis.
— Geymsluhitastig hleðslutækis: -20°C til
25°C.
— Notkunarhitastig hleðslutækis: 0°C til
40°C.
Taktu hleðslutækið úr sambandi áður en það
er þrifið og þegar það er ekki í notkun.
Til að þrífa hleðslutækið, strjúkið af með
rökum klút. Sökkvið hleðslutækinu aldrei ofan
í vatn.
Ráðlagðar varúðarráðstafanir og tæknilegar
upplýsingar.
Sjá bakhlið hleðslutækis.
Geymið leiðbeiningarnar fyrir frekari
notkun.
VIÐVÖRUN:
Aðeins hlaða tæki sem eru Qi-samtengjanleg.
Innstungan verður að vera nálægt tækinu og
auðvelt að ná til hennar.
Notaðu aðeins í þurru umhverfi.
Gættu þess að börn leiki sér ekki með vöruna.
Ef snúran er skemmd ætti að farga tækinu.
Vöruþjónustu viðhald
Ekki gera tilraun til að gera við þessa vöru upp
á eigin spýtur, því ef þú opnar eða fjarlægir
lokin gætir þú orðið fyrir rafstraumi eða öðrum
hættum.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: A1502 HEKTAR
Inntak: 19V, 0.53 A
Aðeins til notkunnar innanhúss
Vinnslutíðni: 110 - 205 kHz
Útgangsafl: -2 dBµA/m við 10m
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilsfang:
Box 702, SE-343 81 Älmhult, SWEDEN
'Qi' táknið er vörumerki Wireless Power
Consortium
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi
yfir þýðir að ekki má farga vörunni með
venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila
í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á
hverjum stað fyrir sig. Með því að henda
slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi
hjálpar þú til við að draga úr því magni af
úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem
landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð
áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð
nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
9