Hellberg 20912-001 Mode D'emploi page 34

Masquer les pouces Voir aussi pour 20912-001:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 10
Notkunarleiðbeiningar
IS
Andlitshlíf þróuð fyrir Safe Face Protection og prófuð samkvæmt staðlinum
EN 166, 170, 171, 172, 1731 í einum eða fleiri flokkum í samræmi við
tilskipun ESB 89/686/EBE. Verndarstigið kemur fram á merki á grímunni og
haldaranum.
Viðvörun
Efni sem kemst í snertingu við húð getur hjá sumum valdið
ofnæmisviðbrögðum. Netgríma veitir ekki vörn gegn málmskvettum, heitum
ögnum eða rafboga. Gríman veitir ekki heldur næga vörn gegn hlutum sem
þeytast á miklum hraða t.d. þegar unnið er með vélsög. Við mælum með að
einnig séu notuð hlífðargleraugu sem uppfylla staðalinn EN166. Ef notaðar
eru hlífar í mismunandi verndarflokkum gildir lægsti flokkurinn.
Þegar hjálmgríman verður fyrir háhraða ögnum geta högg borist yfir venjuleg
augngleraugu og skapað hættu fyrir notandann, þegar hjálmgríma er notuð.
Ef höggmerkingunni F eða B er ekki fylgt eftir með stafnum „T", ætti aðeins að
nota hjálmgrímuna sem vörn gegn háhraða ögnum við stofuhita.
Hjálmgrímur með táknið 9 (bráðnir málmdropar) verða að vera festar á
festingu sem merkt er F eða B, ásamt tákninu 9.
Hjálmgrímur með táknið 8 (skammhlaup rafmagnsljósboga) verður að vera
með síu með kvarðanr.: 2-1,2 eða 3-1,2 og vera 1,4 mm að þykkt.
Viðhald
Grímuna verður að þrífa eftir hverja notkun. Ganga verður úr skugga um að
hún sé ekki rispuð. Best er að nota milt sápuvatn og þurrka með mjúkum
dúk. Forðist hart efni því það getur rispað grímuna. Reglubundið viðhald og
þrif tryggir að gríman er sem þægilegust í notkun. Eftir hreinsun á að geyma
grímuna á þurrum og hreinum stað þar sem ekki skín sól.
Ending
Erfitt er að segja fyrir um hve lengi gríman endist. Ef hún er notuð utanhúss er
mælt með því að skipt sé um a.m.k annað hvort ár. Við erfið skilyrði kann að
vera nauðsynlegt að skipta oftar um. Grímu, sem hefur skemmst, rispast eða
orðið fyrir hnjaski, á að skipta út þegar í stað.
34

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières