MicroPower Sharp 30 Mode D'emploi page 91

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 65
6. Stöðvunarhnappur
7. Loftnetsmerki (grænt), ekki notað
Hleðsla
Varúð
Háspenna!
Ef merki eru um skemmdir á hleðslutækinu,
leiðslum eða tengjum skal taka strauminn af. Ekki
snerta skemmda hluta.
Ekki snerta óeinangruð rafgeymisskaut, tengi eða
rafmagnshluti sem eru í gangi.
Hafið samband við viðgerðaraðila.
Tenging rafgeymis
1. Kannið hvort einhverjar skemmdir sjáist á
köplum og tengjum.
2. Aðgætið að hleðslutækið sé í sambandi við
rafmagnsinnstungu, sjá staðsetning 4.
3. Tengið hleðslutækið við rafhlöðuna
• Hleðsla hefst sjálfkrafa þegar rafgeymir er
tengdur við hleðslutækið.
• Staða hleðslu er sýnd á stjórnborðinu með
hleðslumerkjum. Sjá Staða ljósmerkja á
stjórnborði.
• Grænt rafgeymismerki lýsir þegar
rafgeymirinn hefur fengið fulla hleðslu, sjá
staðsetning 3. Hleðslutækið heldur áfram
með viðhaldshleðslu.
• Hægt er að hafa rafgeyminn stöðugt
tengdan við hleðslutækið þegar það er ekki í
notkun.
Athugið:
Ekki er víst að græna rafgeymismerkið lýsi strax
þegar fullhlaðinn rafgeymir er tengdur. Biðtíminn
getur verið allt að nokkrar klukkustundir.
Rafhlaðan aftengd
Varúð
Sprengihætta!
Ekki aftengja hleðslutækið á meðan hleðsla er í
gangi. Slíkt gæti valdið neistum sem geta skemmt
hleðslutengið og í blýsýrurafgeymum getur það
valdið vetnissprengingu.
Stöðvið alltaf hleðslu með því að ýta á
stopphnappinn áður en rafgeymir er aftengdur.
1. Stöðvið hleðslu rafgeymisins með því að ýta á
stopphnappinn á stjórnborði rafgeymisins.
Hægt er að halda hleðsluferlinu áfram með því
að ýta aftur á STOP takkann.
2. Aftengið hleðslutækið frá rafgeyminum þegar
hleðsla er stöðvuð.
Færibreytustillingar
Aðgát
Rangar færibreytur fyrir hleðslu geta skemmt
rafgeyminn.
Kannið alltaf færibreytur hleðslu áður en hleðsla
hefst.
Breytið og athugið færibreytur
hleðslu
1. Takið hleðslutæki úr sambandi við rafmagn og
aftengið rafhlöðuna.
2. Tengið hleðslutækið við rafmagn.
Ljósmerki fyrir leiðslur kviknar.
3. Eftir að rafstraumur hefur verið tengdur í 20
sekúndur, ýtið á og haldið inni STOP takkanum
í 10 sekúndur.
Hleðslutækið svarar með því að blikka öllum
ljósum einu sinni.
4. Í hvert sinn sem ýtt er á STOP takkann færist
hleðslutækið niður um eitt skref í töflunni
Hleðslustilling að næstu tölu. Eftir síðustu
töluna fer það aftur í tölu 1.
5. Notið F1 til að stilla gildið eða veljið aðgerð.
Kveikt er á F1 er aðgerð eða gildi valið.
91

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières