MicroPower Sharp 30 Mode D'emploi page 90

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 65
Varúð
Sprengihætta!
Ekki reykja, valda neistaflugi eða nota opinn loga
nærri rafgeyminum.
Neistar gætu valdið meiðslum á notanda eða
skemmt rafgeymistengið.
Stöðvið alltaf hleðslu með því að ýta á
stopphnappinn áður en rafgeymir er aftengdur.
Ekki geyma eldfim efni nálægt rafgeyminum.
Tryggið að færibreytur fyrir hleðslu séu stilltar í
samræmi við forskrift framleiðanda rafgeymisins,
sjá Færibreytustillingar.
Hleðsla má aðeins fara fram á vel
loftræstum stað.
Móttaka
Þegar tekið er við vörunni skal kanna hvort
einhverjar skemmdir sjáist á honum. Hafið
samband við flutningsaðilann ef þörf er á.
Berið afhenta hluta saman við afhendingarseðil.
Hafið samband við birgi ef eitthvað vantar
Samskiptaupplýsingar.
Uppsetning
Uppsetning vélbúnaðar
• Setjið hleðslutækið upp innanhúss á þurrum,
hreinum og vel loftræstum stað.
• Fara verður eftir málum sem gefin eru upp fyrir
autt svæði umhverfis hleðslutækið, sjá eftir
gerð.
• Koma skal hleðslutækinu fyrir þannig að gufur
sem myndast við hleðslu berist ekki inn í viftur
hleðslutækisins.
1. Festið hleðslutækið við vegg eða sambærilega
stoð með festingunni sem fylgir með.
Hleðslutækinu er komið fyrir lóðrétt og hægt að
festa það með skrúfum.
Aðgát
Ávallt ætti að festa hleðslutækið tryggilega.
90
Raflagnir
Varúð
Háspenna!
Röng tenging rafgeymiskapla getur valdið
líkamstjóni og skemmt rafgeyminn, hleðslutækið
og kapla.
Gætið þess að tengingar séu réttar.
Hleðslutækið er framleitt fyrir fjórar mismunandi
spennur.
2 Gangið úr skugga um að aflgjafinn á
uppsetningarstaðnum sé í samræmi við
málspennu sem tilgreind er á upplýsingamiða
rafgeymisins. Merkingin er vinstra megin eða á
neðri hluta hleðslutækisins.
Varúð
Háspenna!
Hætta vegna óvarins botns (live chassis).
Tengið hleðslutækið alltaf við innstungu með
jarðtengingu.
Hleðslutækið er yfirleitt með eftirfarandi:
• Fastar snúrur
• Losanlegar snúrur með lægra IP-gildi
Hleðslutækinu fylgir yfirleitt rafgeymiskapall með
eftirfarandi skautun:
• Plús (+) = rautt
• Mínus (-) = blátt eða svart
3 Athugið skautun rafgeymistengis og kapals
áður en rafgeymirinn er tengdur.
4 Tengið hleðslutækið við rafhlöðuna
Notkun
Notendaviðmót - Stjórnborð
Sjá
1. Stjórnborð
2. Viðvörunarmerki (rautt)
3. Hleðslumerki (grænt og gult)
4. Straummerki (blátt)
5. Fjölnota hnappar

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières