Télécharger Imprimer la page

Whirlpool ART 66102 Manuel De L'utilisateur page 142

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 98
Hvernig afísa skal frystihólfið
1 .
Ráðlagt er að stilla á lægra hitastig eða kveikja á hraðfrystingu/hraðkælingu* a .m .k . fjórum klukkustundum áður en
matvælin eru fjarlægð úr frystihólfinu, til að matvælin varðveitist lengur í afísingarfasanum .
2 .
Til að afísa skal slökkva á tækinu og fjarlægja skúffurnar . Setjið frosnu matvælin á kaldan stað . Hafið hurðina opna til að
ísingin bráðni . Til að hindra að vatn leki meðan á afísingunni stendur er ráðlagt að setja íseygan klút í botn frystihólfsins og
vinda hann reglulega .
3 .
Þrífið innan úr frystihólfinu og þurrkið það vandlega .
4 .
Kveikið aftur á tækinu og setjið matvælin aftur inn .
Vinnsluhljóð
1 .
Suð sem þjappan myndar er eðlilegt þegar tækið er að vinna .
2 .
Þegar kælimiðilsgasið fer í gegnum kælirásina myndast gutl- og snarkhljóð, þetta eru því
eðlileg hljóð .
3 .
Mögulegt er að „heyra" marr þegar þjappan er virk og óvirk: Þetta er eðlilegt hljóð sem
stafar af því hvernig tækið er byggt upp .
4 .
Athugið að hillurnar innan á kæliskápshurðinni, hillurnar og skúffurnar í kæliskápsrýminu séu festar og staðsettar á réttan
hátt, til að koma í veg fyrir mögulegan titring .
5 .
Setjið ekki glerílát (flöskur, krukkur o .s .frv . ) í beina snertingu hvert við annað, til að hindra titring .
6 .
Þetta tæki er búið þjöppu sem vinnur við besta hraða til að lágmarka orkunotkun . Í sumum tilfellum getur það gerst (á
sumrin eða ef mikið magn matvæla er sett inn) að þjappan eykur hraðann og er þess vegna háværari en venjulega .
Ráðleggingar þegar tækið er ekki í notkun
Í því tilfelli sem tækið er ekki notað
Aftengið tækið frá rafveitu, tæmið það (ef þarf) og þrífið .
Haldið hurðunum opnum í hálfa gátt til að leyfa hringrás lofts innan í rýmunum . Með því er komið í veg fyrir að mygla og slæm
lykt myndist .
Í tilfelli rafmagnstruflunar
Haldið hurðunum lokuðum þannig að matvælin haldist köld eins lengi og mögulegt er . Frystið ekki aftur matvæli sem hafa
verið þídd niður að hluta . Ef það er langvarandi rafmagnsleysi gæti rafmagnsleysisviðvörunin einnig virkjast (í tækjum með
rafeindabúnaði) .
6
Leiðbeiningar um notkun og umhirðu

Publicité

loading