Íslenska
TOSTERÖ hlífin er vatnsheld og verndar
útihúsgögnin þín fyrir regni, sól, snjó, óhreinindum,
ryki og frjókornum þegar þau eru ekki í notkun.
Með vatnsheldri hlíf, verndar þú húsgögnin þín og
lengir tímann þar til þú þarft að sinna viðhaldi.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Athugið! Ekki er hægt að snúa hlífinni við.
Glansandi hliðin verður alltaf að snúa inn, að
húsgagninu.
Gætið þess að húsgögnin séu þurr. Þegar búið
er að breiða yfir húsgögnin þarf að festa böndin
með krókunum á fæturna til að tryggja að hlífin
haldist á sínum stað í miklum vindi. Komið hlífinni
svo þannig fyrir að hún verndi líka neðri hluta
húsgagnanna.
Geymið útihúsgögnin á svölum og þurrum stað
innandyra þegar þau eru ekki í notkun í lengri
tíma. Ef ekki er komist hjá því að þau standi úti þarf
að breiða yfir þau og geyma undir þaki á þurru
gólfi eða yfirborði til að koma í veg fyrir að mygla
komist í viðinn í gegnum fæturna. Ef ekki er hægt
að geyma húsgögnin undir þaki, þarf að halla þeim
svo að regnvatn renni af þeim. Eftir mikla rigninu
eða snjókomu þarf að strjúka af húsgögnunum,
sérstaklega sléttum flötum. Geymið húsgögnin
þannig að loft leiki um þau til að koma í veg fyrir
skemmdir vegna raka og myglu.
UMHIRÐULEIÐBEININGAR
Til að hreinsa ryk og óhreinindi af hlífinni ætti
að sprauta á hana köldu vatni (30°C) eða þurrka
af henni með blautri tusku. Til að hreinsa
mikil óhreinindi þarf að nota svamp og mildan
uppþvottalög, og skola á eftir með köldu vatni.
9