Télécharger Imprimer la page

OGK urban iki Ta-ke Mode D'emploi page 19

Siège vélo arrière

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 26
Börn í barnastólum þurfa að vera betur klædd en
hjólreiðafólk og ætti að verja þau fyrir rigningu. Barnið
þitt mun ekki vera á hreyfingu svo því verður fljótt kalt.
Við mælum með að barnið noti með hjálm af réttri
stærð þegar það er í barnastólnum. Hjálmurinn ætti að
vera í samræmi við EN 1078:2012 +A1:2012.
Fylgstu reglulega með því að barnið sé innan leyfilegra
marka hámarkshæðar og þyngdar.
Ætlarðu að flytja hjólið á hjólafestingu bíls? Fjarlægðu
alltaf barnastólinn. Högg, kippir og ókyrrð í lofti geta
skemmt eða losað barnastólinn eða festingu þess við
hjólið. Þetta gerir barnastólinn óöruggan í notkun og
getur valdið slysi.
Viðhald
Haltu barnastólnum rétt við, þar sem það mun þá
tryggja þér margra ára ánægju. Nægjanlegt er að þrífa
hann stöku sinnum með klút, volgu vatni og mildu
hreinsiefni.
Komi upp óánægja eða galli sem tengist barnastólnum
skaltu hafa samband við söluaðila barnastólsins eða
þjónustuver okkar.
VIÐVÖRUN!
Af öryggisástæðum skal aðeins festa þennan barnastól á
bögglabera sem eru í samræmi við EN ISO 11243:2016 og eru
merktir með 27 kg burðargetu.
Ekki festa aukafarangur við barnastólinn. Allur aukafarangur skal
festur við gagnstæðan enda reiðhjólsins, t.d. ef barnastóllinn er
aftan á, skal nota farangurstöskur að framan.
Ekki breyta barnastólnum.
Eiginleikar hjólsins gætu breyst með barn í barnastólnum.
Sérstaklega með tilliti til jafnvægis, stýringar og hemlunar.
Skildu aldrei hjólið eftir með barn eftirlitslaust í barnastólnum.
Ef hvers konar sprunga er sýnileg eða ef yfirborðið byrjar að
morkna, gefur það til kynna að sætið er ónýtt og því ætti að skipta
út fyrir nýtt. Hafðu samband við fagmann ef vafi kemur upp.
Athugið hvort barnastóllinn sé með sprungur eða beyglur ef hann
hefur fengið á sig högg eða dottið niður.
Athugaðu alltaf hitastig á yfirborði barnastólsins fyrir notkun.
Þessi barnastóll er ekki hentugur til notkunar við íþróttaiðkun.
Copyright 2023 by OGK Europe B.V.
19

Publicité

loading

Produits Connexes pour OGK urban iki Ta-ke