SAMSETNING VÖRUNNAR (ÁFRAM)
Settu í samband við jarðtengda innstungu.
Ekki fjarlægja jarðtenginguna.
Ekki nota millistykki.
Ekki nota framlengingarsnúru.
Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum getur það leitt til dauða,
elds eða raflosts.
5.
Settu hrærivélina í samband við jarðtengda innstungu.
NOTKUN VÖRUNNAR
TIL AÐ BÚA TIL ÍS
MIKILVÆGT: Ef ísblöndu er helt í frystiskálina áður en hrærivélin er sett í gang gæti blandan
frosið of fljótt og stíflað þeytarann.
Fyrir fyrstu notkun
Stilltu frystinn á köldustu stillingu. Geymdu frystiskálina í frystinum í að minnsta kosti
16 klukkustundir. Búðu til ísblönduna fyrirfram. Sjá „Ráð fyrir frábærar niðurstöður" í
vöruleiðbeiningunum á netinu.
1.
Stilltu hrærivélina á hraða 1 (hræra) og helltu ísblöndunni í frystiskálina. Blandaðu í
20-30 mínútur eða þar til æskilegri þykkt er náð. Bættu við heilu hráefni á borð við
ávöxtum, hnetum, sælgæti eða súkkulaðibitum við eftir að búið er að hræra í
12-15 mínútur.
2.
Fjarlægðu þeytarann og frystiskálina og notaðu gúmmísleikju eða sleif úr plasti eða tré til
að setja ísinn í skálar til að borða eða loftþétt ílát til að geyma.
ATHUGIÐ: Ef þeytarinn byrjar að renna til og smellur heyrist frá honum er það vísir um að
ísinn sé tilbúinn.
ATHUGIÐ: Ísgerðartækið býr til mjúkan ís. Til að fá harðari ís þarf að geyma hann í
loftþéttu íláti í frystinum í 2–4 klukkustundir.
MIKILVÆGT: Ekki geyma ísinn í frystiskálinni í frystinum. Það gæti skemmt frystiskálina
að taka harðan ís úr henni með málmskeiðum eða borðbúnaði.
UMHIRÐA OG HREINSUN
ÍSGERÐARTÆKIÐ ÞRIFIÐ
MIKILVÆGT: Láttu tækið kólna alveg áður en hlutir eru settir á eða teknir af og áður en tækið
er þrifið.
MIKILVÆGT: Leyfðu frystiskálinni að ná stofuhita áður en hún er þrifin.
1.
Setja má þeytarann og samstæðu drifbúnaðar í uppþvottavél, aðeins í efri hillu.
2.
Þvoðu frystiskálina í höndunum með volgu vatni og mildu þvottaefni. Hún má aldrei fara í
uppþvottavél. Þurrkaðu frystiskálina vandlega áður en þú geymir hana í frystinum.
VIÐVÖRUN
Hætta á raflosti
99