SAMSETNING VÖRUNNAR (ÁFRAM)
Settu í samband við jarðtengda innstungu.
Ekki fjarlægja jarðtenginguna.
Ekki nota millistykki.
Ekki nota framlengingarsnúru.
Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum getur það leitt til dauða,
elds eða raflosts.
6.
Settu hrærivélina í samband við jarðtengda innstungu.
ÍSGERÐARBÚNAÐURINN FESTUR Á HRÆRIVÉL MEÐ
SKÁLARLYFTU
Fyrir fyrstu notkun
Fjarlægðu merkinguna sem segir „Má ekki setja á kaf í vatn" áður en þú notar búnaðinn.
Aðeins má þvo frystiskálina, þeytarann og samstæðu drifbúnaðar í höndunum.
1.
Slökktu á hrærivélinni og taktu hana úr sambandi.
2.
Setjið skálarlyftuhandfangið niður og takið skálina úr.
MIKILVÆGT: Ekki hella ísblöndunni í frystiskálina fyrr en búið er að setja alla hluta saman
og hrærivélin er í gangi.
ATHUGIÐ: Notaðu frystiskálina um leið og hún er tekin úr frystinum, því hún byrjar strax að
þiðna.
3.
Settu frystiskálina yfir staðsetningarpinnana. Ýttu niður aftan á frystiskálina þar til
skálarpinnarnir smella inn í gormafestinguna.
ATHUGIÐ: Frystiskálin er hönnuð til að passa við flestar hrærivélar með skálarlyftu. Ef
skálarpinninn aftan á skálinni er of langur til að smella í gormafestinguna skal taka skálina úr
og snúa henni þannig að auða hliðin snúi að gormafestingunni. Endurtaktu skref 3.
4.
Settu þeytarann inn í frystiskálina.
SAMSTÆÐA DRIFBÚNAÐAR FEST Á HRÆRIVÉL MEÐ
SKÁLARLYFTU
1.
Gættu þess að slökkt sé á hrærivélinni og að hún sé ekki í sambandi.
2.
Gættu þess að handfang skálarlyftunnar sé niðri og að frystiskálin og þeytarinn séu á
réttum stöðum.
3.
Settu samstæðu drifbúnaðar á þeytarann og láttu útskorna hlutann passa við skaft
hrærivélarinnar.
4.
Lyftu skálinni til að tengja samstæðu drifbúnaðar við hrærivélina.
98
VIÐVÖRUN
Hætta á raflosti