Secure REACT Mode D'emploi page 62

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 10
IS
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Allar heyrnarhlífar á þessu leiðbeiningablaði eru búnar
höfuðbandi úr mjúkplasti og örmum eða hálsbandi úr
ryðfríu stáli ásamt púðum sem fylltir eru með frauðplasti.
Heyrnarhlífunum er ætlað að verja notandann gegn skaðlegu
hávaðastigi þegar þær eru notaðar í samræmi við þessar
notkunarleiðbeiningar. Öll önnur notkun er ekki í samræmi við
fyrirhugaða notkun og því óheimil.
Hér með lýsir Hellberg Safety AB, því yfir að SECURE-
heyrnarhlífarnar samræmast reglugerð Evrópusambandsins
2016/425 um hlífðarbúnað, tilskipun 2014/53/ESB um
þráðlausan fjarskiptabúnað og viðeigandi hlutum Evrópskra
staðla:
• EN 352-1 (höfuðband/hálsband)
• EN 352-3 (festing hjálms)
• EN 352-4 (virk hlustun)
• EN 352-6 (búnaður til móttöku ytri hljóðmerkja)
• EN 352-8 (útvarp)
ESB-samræmisyfirlýsinguna má finna í heild sinni á
eftirfarandi vefslóð: www.hellbergsafety.com/doc
Rekjanlegar upplýsingar má finna á miðanum innan á loki
rafhlöðuhólfs.
Prófað samkvæmt tilskipun 2014/53/ESB um þráðlausan
fjarskiptabúnað (Evrópa) af Nemko, tilkynntum aðila: 0470.
Þessi vara fellur undir tilskipun um raf- og
rafeindabúnaðarúrgang (2012/19/ESB). Ekki má fleygja
vörunni með óflokkuðu heimilissorpi. Förgun á rafhlöðum skal
fara fram í samræmi við gildandi staðbundnar reglugerðir.
Fargið rafeindabúnaði hjá viðeigandi endurvinnslustöðum.
Viðvörun!
Mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningunum. Ef það er
ekki gert kann það að leiða til þess að hávaðadeyfing hlífanna
skerðist mikið sem aftur kann að leiða til alvarlegs skaða.
Lesið þessar notkunarleiðbeiningar vandlega!
• Alltaf skal nota heyrnarhlífarnar í hávaðasömu umhverfi til
að tryggja fulla vernd! Aðeins 100% nýting veitir fulla vernd.
• Á sumum vinnustöðum getur hljóð viðvörunarmerkja
dempast þegar heyrnarhlífar með of mikilli hávaðadeyfingu
miðað við hljóðumhverfið eru notaðar.
• Ákveðin íðefni geta valdið skemmdum á vörunni. Frekari
upplýsingar fást hjá framleiðanda.
• Tryggið að heyrnarhlífarnar séu skoðaðar reglulega og
virkni þeirra athuguð.
• Ekki má nota vöruna í umhverfi þar sem er sprengihætta.
• Hávaðadeyfandi eiginleikar heyrnarhlífanna geta
minnkað verulega þegar þær eru notaðar með þykkum
gleraugnaumgjörðum, skíðagleraugum, lambhúshettum
o.s.frv.
• Notkun svita-/óhreinindavarnarbúnaðar yfir þéttihringina
getur dregið úr hávaðadeyfingu heyrnarhlífanna.
• Eyrnaskjólin, einkum púðarnir, geta skemmst við notkun og
skal skoða þau oft og reglulega til að leita eftir sprungum
og leka.
• Fargið vörunni án tafar ef á henni sjást sprungur eða
skemmdir.
• Skipta skal um hreinlætisbúnað a.m.k. tvisvar á ári. Gætið
þess að velja réttan hreinlætisbúnað fyrir heyrnarhlífarnar.
• Þrífið vöruna með mildri sápu. Gangið úr skugga um að
hreinsiefnið erti ekki húð. Dýfið vörunni ekki í vatn. Ef
skeljarnar eru rakar skal snúa þeim við og fjarlægja púðana
til að þurrka það. Fjarlægið rafhlöðurnar.
• Geyma skal heyrnarhlífarnar á þurrum og hreinum stað,
fjarri sólarljósi, t.d. í upprunalegum umbúðum.
• Þessar heyrnarhlífar eru útbúnar með hljóðstyrksstýrðri
deyfingu. Notandi skal athuga hvort þær virki sem skyldi
fyrir notkun. Ef vart verður við bjögun eða bilun skal notandi
fara eftir ráðleggingum framleiðanda um viðhald og skipti
á rafhlöðu.
• Viðvörun! Afköst gætu minnkað í samræmi við
rafhlöðunotkun. Dæmigerð tímalengd samfelldrar notkunar
sem búast má við af heyrnarhlífunum er 120/130/1000 klst.
• Viðvörun! Frálag hljóðstyrksstýrðrar rásar þessa
heyrnarhlífa kann að vera meira en ytri hljóðstyrkur.
Heyrnarhlífarnar settar upp og stilltar (A)
Strjúkið allt hár frá eyrunum og setjið heyrnarhlífarnar yfir
eyrun þannig að þær sitji þétt og þægilega. Gangið úr
skugga um að
eyrun séu alveg undir eyrnaskjólunum og að jafn þrýstingur
finnist í kringum eyrun.
Höfuðband (A1)
Stillið lengd höfuðbandsins þannig að það liggi létt á
hvirflinum.
Festing á hjálm/hettu (A2)
Ýtið hjálmfestingu heyrnarhlífanna í raufina á hjálminum þar
til hún læsist. Setjið heyrnarhlífarnar yfir eyrun og ýtið inn á
við þar til smellur heyrist. Stillið heyrnarhlífarnar og hjálminn
þannig að þau sitji vel á höfðinu.
62

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

RelaxActive

Table des Matières