Windhager TOPO STOP E 250 Manuel D'utilisation page 62

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 24
IS
iceLanDic
TOPO STOP E 250 búnaðurinn virkar við að
fæla burt mýs og rottur og eins svefnmýs,
merði og þvottabirni.
Mýs stjórnast aðalega af lyktarskyni og af
viðkvæmri heyrn. Leiðir þeirra liggja í gegnum
íbúðir, framhjá ruslatunnum þar sem auðvelt
aðgengi er að matvælum, en síðan fara þær
aftur í hýbýli sín sem eru yfirleitt í kjöllurum.
Tækið sendir frá sér hljóð í mishárri tíðni, en
þessi hvellu hljóð hafa þau áhrif á viðkvæma
heyrn dýrana að þau flýja svæðið innan
skamms. Sendingartíðnin breytist reglulega
með óreglubundum hætti til þess að koma í veg
fyrir að dýrin venjist hljóðinu.
Á framhliðinni er hátíðni-hátalari og
ljósdíóðuljós fyrir stillingar. Stungupinninn
(Jumper) sem notaður er til að skipta um stig
er undir svörtu hlífinni. Taka skal hlífina af með
því að nota smápening eða með skrúfjárni og
skipta skal um stig með aðstoð smátangar,
en eftir það skal loka hlífinni aftur. Frá
framleiðanda kemur búnaðurinn með stillingu
eitt. dósirnar fyrir orkuinntakið eru á hliðunum
(frjálst val).
Stig Eitt: Tækið sendir frá sér hljóð á milli 25 –
30 kHz á hátíðnisviðinu. Þetta svið er öllu jöfnu
ekki greinanlegt fyrir mannlega heyrn.
Stig tvö: Tækið sendir frá sér hljóð á milli
6 – 9 kHz á tíðnisviðinu. Mælt er með því að
nota þessa stillingu í bústöðum þar sem engin
dvelur og í lager- og geymslurýmum. Hin
náttúrulega virkni þessarar stillingar er mest.
Uppsetning: Setja ætti tækið upp á vegg
eða lofti í hæð að einum metra. Stinga skal
snúrunni sem fylgir í eina af hliðardósunum.
Við það er tækið komið í notkun.
62

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières