Mikilvægt!
•
Gler er viðkvæmt efni sem þarf ávallt að
meðhöndla varlega.
•
Aldrei nota glerílát með rispum, sprungum
eða öðrum sýnilegum skemmdum, þar sem
það gæti dregið úr gæðum efnisins og orðið
til þess að glerið brotni. Því er mikilvægt að
skoða glerið fyrir hverja notkun. Gættu þess
að reka glerílátið ekki utan í hluti sem gætu
valdið skaða á því, til dæmis í uppþvottavél,
borðplötu eða skáp.
•
Börn mega ekki nota vöruna og hún ætti að
vera geymd þar sem börn ná ekki til. Glerílátið
getur innihaldið sjóðandi vatn sem gæti valdið
bruna.
•
Glerílátið má ekki verða fyrir snöggum
hitabreytingum því glerið getur brotnað. Því
má aldrei setja heitt glerílát á kalt eða blautt
yfirborð.
•
Te-/kaffikönnuna má ekki nota á
eldavélahellu, gasloga eða keramikhellu.
16